Segir alla vita hvað verður spurt um

Davíð Þór Björgvinsson, fyrrverandi dómari við Mannréttindadómstól Evrópu, hefur skrifað pistil í tilefni af umsögn landskjörstjórnar sem þykir orðalag í þjóðaratkvæðisgreiðslu síðsumars verða hæpið. Margir hafa sakað formann landskjörstjórnar um hrein pólitísk afskipti af málinu vegna andstöðu formanns og félaga við aðild að ESB.

Davíð Þór bendir á að Alþingi taki sjálft lokaákvörðun um orðalag spurningar. Alþingi metur, áður en sú ákvörðun er tekin, hvort og að hvaða marki tekið verður mið af umsögn Landskjörstjórnar eða öðrum umsögnum sem borist hafa.

Í ítarlegu máli á DV.is fer lögspekingurinn yfir málið. Sennilega eru það þó lokaorðin sem vekja mesta athygli og má segja að Davíð Þór segi Landskjörstjórn til syndanna:

Í lokin vil ég viðra þá þanka mína að almennt verði að telja óheppilegt að farið sé að hringla með orðalag spurningarinnar á þessum tímapunkti enda lífleg og uppbyggileg umræða um málið þegar farin af stað af miklum þrótti víða í samfélaginu. Í þeirri umræðu hef ég ekki séð eða heyrt neitt sem bendir til þess að þeir sem í henni hafa tekið þátt skilji ekki það sem um er spurt. Á það líka við um þá sem annars eru af því þekktir að snúa út úr orðalagi sem fyrir þorra almennings er kýrskýrt.

Allir sem vilja, vita um hvað er spurt! Við stöndum frammi fyrir mikilvægri ákvörðun sem varðar börn okkar og barnabörn til langrar framtíðar. Stefnum að því öll, hvert fyrir sig, að taka upplýsta ákvörðun og virðum niðurstöðuna þegar hún liggur fyrir. Svo höldum við bara áfram að deila um eitthvað annað. Það fellur örugglega eitthvað til!“

Þess má geta að við Rauða borðið á Samstöðinni í kvöld ræðir Þröstur Ólafsson þjóðhagfræðingur eigin afstöðu til ESB og íslensku krónunnar í samtali við Björn Þorláks.

Sjá hér: Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Þankar í tilefni af umsögn landskjörstjórnar – DV

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí