Byggjum ekki upp samfélag með gremju, andúð og fyrirlitningu á öðrum
Okkar borg, framboð samtakanna Ísland þvert á flokka, fékk 0,4% atkvæða í Reykjavík. Miðflokkurinn fékk 11,4% eftir að Ari Edwald hafði reynt að þvo af sér fordóma Snorra Mássonar og ýmissa Miðflokksmanna (fór niður fyrir 7% í könnunum þegar mest var fjallað um regnbogafána við skóla). Miðflokkurinn reynir með hundablístri að halda í fylgi þeirra sem eru haldnir mestri gremju gagnvart hinsegin fólki og útlendingum, en líklega er þessi kjósendahópur ekki stærri en 5% eða svo. Það er magnað hvað stór hluti stjórnmálaumræðunnar hverfist um gremju hans. Eflaust tengir stærri hópur við þessar skoðanir, en það er þó fólk sem veit að ef byggja á upp samfélag verður það ekki gert með gremju, andúð og fyrirlitningu á öðrum.
Við þurfum á þér að halda
Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.
Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.
Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.
Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.
Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.
Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.
Þitt framlag skiptir máli.
Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward