Hjólar í Rúv og segir fréttakonu hlutdræga

„Það var eiginlega með ólíkindum að horfa á kvöldfréttir RÚV í fyrrakvöld. Sex dögum fyrir kosningar er bensínstöðvamálið blásið upp á ný, án þess að nokkuð nýtt hafi komið fram. Engin ný gögn. Engar nýjar ákvarðanir. Ekkert sem réttlætir þessa viðkvæmu tímasetningu. Nánast eins og fréttin hafi legið tilbúin í skúffu mánuðum saman og einfaldlega verið dregin fram á nákvæmlega ,,rétta“ augnablikinu.“

Þetta segir Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi, fyrrum pírati, nú Samfylkingarkona, um efnistök fréttastofu Ríkisútvarpsins skömmu fyrir kjördag.

„Lóðin við Egilsgötu hefur verið í uppbyggingu mánuðum saman, ef ekki lengur, og skipulagið afgreitt löngu áður en bensínstöðvaskýrslan leit dagsins ljós. Annað skipulag bensínstöðvalóða hefur beðið. Hver er þá fréttin nákvæmlega? Tímasetningin er fréttin,“ segir Dóra Björt í færslu á facebook.

„Sjálfstæðisflokkurinn hefur alla tíð verið duglegur við að moka drullu inn í lokasprett kosningabaráttu. Það sem stingur núna er að ríkisfjölmiðillinn virðist ekki aðeins hlaupa með þá bolta heldur jafnvel sparka þeim af stað sjálfur, þrátt fyrir að ekkert nýtt liggi fyrir sem réttlætir nákvæmlega þessa tímasetningu.“

Þá víkur píratinn fyrrverandi að ættartengslum fréttamannsins sem flutti fréttina og lætur mynd af fréttamanni fylgja:

 „Auðvitað fer fólk að velta fyrir sér hvaða sjónarmið móta forgangsröðunina þegar fréttamaður með augljós tengsl inn í Sjálfstæðisflokkinn og fjölskyldutengingar við harða gagnrýnendur meirihlutans leiðir slíka umfjöllun á þessum tímapunkti. Það þarf ekki að þýða neitt eitt og sér en hjá ríkisfjölmiðli ætti einmitt að ríkja sérstök meðvitund um trúverðugleika, hlutleysi og það hvernig svona blasir við almenningi.

En ábyrgðin stoppar ekki hjá einstökum fréttamanni. Ritstjórn kvöldfréttanna tekur endanlegar ákvarðanir um hvað fer í loftið, hvenær og með hvaða áherslum. Þess vegna vakna líka spurningar um hvort ritstjórnin hafi einfaldlega látið þetta flakka athugasemdalaust, eða hvort ótti við enn eitt opinbert upphlaup um meinta ,,ritskoðun“ hafi orðið til þess að enginn þorði að stíga á bremsuna.

Þegar RÚV ákveður að endurhita gamalt mál korteri fyrir kosningar án nýrra upplýsinga eða nýlegra atburða sem skýra tímasetninguna, þá er eðlilegt að fólk spyrji sig: Er verið að upplýsa almenning, eða hafa áhrif á kosningar?“

Fréttakona Rúv sem um ræðir, María Sigrún Hilmarsdóttir, lenti upp á kant við yfirmann þegar hún gerði tilraun til að búa til innslag í Kveik um bensínstöðvalóðirnar. Vinna hennar endaði að lokum í Kastljósi.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí