Svona lítur kosningaspá Vísis út ef við skoðum hversu líklegt er að frambjóðendur nái inn í borgarstjórn. Ef við tökum fyrst þau sem eru með +90% möguleika þá eru 16 fulltrúar svo til öruggir, mikið þarf að ganga á (eða könnunarfyrirtækin að vera út á túni) svo þessi nái ekki inn sem ég set inn í rauðan kassa. Hópurinn skiptist svona:
- Sjálfstæðisflokkur: 7 fulltrúar
- Samfylking: 4 fulltrúar
- Vinstrið: 2 fulltrúar
- Viðreisn: 2 fulltrúar
- Miðflokkur: 1 fulltrúi
Síðan raðast næstu menn svona
Síðustu menn inn:
- 17 – Annar maður á lista Miðflokksins
- 18 – Fyrsti maður á lista Framsóknar
- 19 – Fimmti maður á lista Samfylkingar
- 20 – Áttundi maður á lista Sjálfstæðisflokksins
- 21 – Fyrsti maður á lista Sósíalistaflokksins
- 22-23 – Þriðji maður á lista Vinstrisins og þriðji maður á lista Viðreisnar
Þeir eru jafnir þarna síðastir inn Stefán Karlsson og Þorvaldur Davíð
Næstu menn inn:
- 24 – Þriðji maður á lista Miðflokksins
- 25 – Níundi maður á lista Sjálfstæðisflokksins
- 26 – Sjötti maður á lista Samfylkingar
- 27 – Annar maður á lista Framsóknar
Þið getið leikið ykkur að því að hósta á þetta frá hægri, þá fær Sjálfstæðisflokkurinn 9 og Miðflokkur 3 sem dugar fyrir meirihluta. Eða þið getið hóstað á þetta frá miðjunni á þá fær Sjálfstæðisflokkur 8, Viðreisn 3 og Framsókn 2 og aftur er kominn meirihluti. Eða þið getið hóstað frá vinstri og þá verður niðurstaðan einhver allt önnur, þið þurfið að hósta ansi hraustlega til að fá mið-vinstri meirihluta.
Siðast dugðu 3,85% atkvæða fyrir manni. Hvort sama fylgi dugi nú ræðst af því hversu mörg atkvæði falla dauð og hvernig atkvæði allra flokka nýtast. En niðurstaðan ætti að vera nálægt því sem var 2022. Ef svo er má segja að þetta sé svona:
Þröskuldarnir að ná inn mönnum:
- 3,85% Einn borgarfulltrúi
- 7,70% Tveir borgarfulltrúar
- 11,55% Þrír borgarfulltrúar
- 15,4% Fjórir borgarfulltrúar
- 19,25% Fimm borgarfulltrúar
- 23,1% Sex borgarfulltrúar
- 26,95% Sjö borgarfulltrúar
- 30,8% Átta borgarfulltrúar
- 34,65% Níu borgarfulltrúar
- 38,5% Tíu borgarfulltrúar