Spáir Þorgerði útgöngu úr pólitík innan skamms

Vigdís Hauksdóttir, fyrrum þingmaður og núverandi stuðningsmaður Miðflokksins, segir að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, oddviti Viðreisnar og utanríkisráðherra, muni hætta í pólitík að lokinni þjóðaratkvæðisgreiðslu 29. ágúst næstkomandi.

Þetta kemur fram í færslu á félagsmiðlum hjá Vigdísi.

Þar hneykslast Vigdís á ummælum Þorgerðar Katrínar sem höfð eru eftir í frétt og skrifar:

„Mikið erum við ESB andstæðingar heppin að hafa svona ruglaðan utanríkisráðherra fram yfir 29. ágúst – þá hættir hún,“ segir Vigdís Hauksdóttir um Þorgerði Katrínu.

Hún deilir frétt Vísis þar sem ráðherrann telur andstæðinga súina leita í smiðju Farage og Reform og bætir við:

„Er þetta upptaktur af því að treysta þjóðinni – að dreifa sjálf falsfréttum en saka aðra um slíkt?

Ég er eiginlega orðlaus og slíkt gerist sjaldan.“

Hér er frétt Vísis: Segir and­stæðinga við­ræðna leita í hand­bók Farage og Reform – Vísir

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí