Samkvæmt þessu ætla 59% þeirra sem kusu Sósíalistaflokkinn í borgarstjórnarkosningunum 2022 að kjósa Vinstrið nú. Aðeins 16% kjósenda flokksins vilja kjósa framboð flokksins nú. Þetta styður það sem ég hef alla tíð haldið fram, að yfirtökuhópurinn sem náði kosningu í stjórnir flokksins naut lítils stuðnings innan flokksins eða meðal kjósenda hans. Þau sem koma úr flokknum og eru í framboði fyrir Vinstrið eru miklum mun nær því að vera fulltrúar þeirra sem byggðu þennan flokk upp.
Ef skoðað ert hversu vel flokkarnir halda í fylgi sitt er listinn svona:
Miðflokkurinn: 81%
Sjálfstæðisflokkurinn: 73%
Vg sem kjósa Vinstrið: 66%
Samfylkingin: 62%
Sósíalista sem kjósa Vinstrið: 59%
Viðreisn: 47%
Flokkur fólksins: 35%
Framsókn: 27%
Píratar: 26%
Sósíalistaflokkurinn: 16%
Hafa ber í huga að Miðflokkurinn fékk sáralítið fylgi 2022. En samkvæmt þessu er minnst tryggð kjósenda við Sósíalistaflokkinn, Pírata og Framsókn.
Við þurfum á þér að halda
Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.
Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.
Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.
Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.
Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.
Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.