Ólafur Stephensen, sem fyrrum starfaði sem fréttaskýrandi, leiðarahöfundur og blaðamaður, segist ekki hafa áhyggjur af rasistaviðhorfum hjá Ara Edwald, oddvita Miðflokksins, enda sé Ari vinur hans.
Hins vegar séu ýmis „frík í lestinni“ innan Miðflokksins eins og Ólafur orðar það. Því telur hann fara betur á því að Hildur Björnsdóttir, oddviti sjálfstæðismanna í Reykjavík, myndi ekki meirihluta með Miðflokknum.
Þetta kemur fram í færslu Ólafs á samfélagsmiðlum. Hann hefur leik á því að vitna til ummæla Hildar í Silfrinu í gærkvöld:
„Ég vil segja strax að ég myndi aldrei kæra mig um að leiða meirihluta þar sem rasismi eða fordómar gagnvart minnihlutahópum eru í öndvegi eða liðnir, bara aldrei á minni vakt.“
Þetta sagði Hildur og ummæli hennar eru að sögn Ólafs mikilvæg yfirlýsing af hálfu oddvita Sjálfstæðisflokksins, sem er nú í sterkri stöðu við myndun meirihluta eftir góðan kosningasigur.
„Þá ætlar hún væntanlega ekki að mynda meirihluta með Miðflokknum. Ég hef reyndar ekki stórar áhyggjur af oddvita þess flokks, Ara vini mínum, í þessum efnum, en hann er með ýmis frík í lestinni sem ég leyfi mér að efast um að hann hafi stjórn á,“ skrifar Ólafur Stephensen.