Sabine Leskopf, fráfarandi borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, segir að þeir kjósendur sem hafi greitt Sjálfstæðisflokki, Viðreisn eða Framsóknarflokki atkvæði sitt í borgarstjórnarkosningunum, hafi verið hafðir að fíflum.
Þetta rökstyður Sabine með því að kosningabarátta þessara flokka hafi gengið út á að skera niður rekstrarkostnað og auka aðhald í borgarmálunum. En nú hafi komið á daginn að þessir flokkar muni þvert á móti auka rekstrarkostnað verulega.
Sabine segir að það gerist með því að nýi meirihlutinn hafi fjölgað ráðum um tvö og í stað þess að fólk sem sé á föstum launum vinni vinnuna sína, muni nýi meirihlutinn dreifa bitlingum til varaborgarfulltrúa, sem fái þá borgar aukalega fyrir hvern fund sem þeir sitja.
Þetta kemur fram í facebook-færslu Sabine. Alexandra Briem, pírötum, hefur bent á svipaða hluti.
Eftir stendur að nýi meirihlutinn hyggst spara rekstrarkostnað með því að leggja niður Mannréttindaskrifstofu og Mannréttindaráð.