Fjáröflunarmaraþon Samstöðvarinnar

Samstöðin fyrirhugar fjáröflunarútsendingu þriðjudaginn 1. desember næstkomandi. Tímasetningin er ekki tilviljun en ritstjóri Samstöðvarinnar, Gunnar Smári Egilsson, fékk þá hugmynd að nýta fullveldisdaginn til að gera Samstöðina „fullvalda“.

Með því á ritstjórinn við að vegna dráttar sem orðið hefur á greiðslu fjölmiðlastyrks frá menntamálaráðuneytinu stríðir Samstöðin við lausafjárvanda, ekki rekstrarvanda. Von starfsmanna er að með fjáröfluninni verði hægt að safna nægum peningum til að tryggja framtíð Samstöðvarinnar og endurnýja tækjakost sem kominn er til ára sinna,

Helstu tekjur Samstöðvarinnar berast frá bakhjörlum, fólki sem greiðir mánaðarlegt gjald í þakklætisskyni fyrir þá miklu dagskrá og þjónustu sem Samstöðin veitir hlustendum og áhorfendum. Samstöðin er einnig góður kostur fyrir auglýsendur. Von starfsmanna er að átakið fjölgi áskrifendum og auglýsendum. Hægt er að styrkja Samstöðina með eingreiðslu eða mánaðarlegri upphæð, 2.750 krónur er algengasta framlagið. Eigendur Samstöðvarinnar eru almenningur. Sjá hér: Samstöðin Áskriftir

Áætlað er að bein maraþonútsending hefjist klukkan 08 að morgni 1. des og standi yfir óslitið fram að miðnætti.

Hér má kynna sér betur hugmyndina að fjáröflunarmaraþoni Samstöðvarinnar og fyrirhugaða útfærslu sem hefst með morgunsjónvarpi í beinni í umsjá Ásdísar Olsen og Björns Þorláks.

Rauða borðið – Aukaþáttur: Vinnufundur um fullveldi Samstöðvarinnar

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí