Atvinnuleysi eykst

Atvinnuleysi varð mest á Suðurnesjum í janúar á landinu eða 7,7% og hækkaði úr 7,2% frá desember.

Í janúar voru 213 einstaklingar á ráðningarstyrk innan fyrirtækja eða stofnana og 12 einstaklingar voru á nýsköpunarstyrk.

Að meðaltali voru 8.563 atvinnulausir í janúar, 4.998 karlar og 3.565 konur. Að meðaltali fjölgaði atvinnulausum um 688 frá desember.

Í janúar 2025 gaf Vinnumálastofnun út 200 atvinnuleyfi til erlendra ríkisborgara til að starfa hér á landi, þar af 179 á höfuðborgarsvæðinu.

Skráð atvinnuleysi í janúar var 4,2% og hækkaði úr 3,8% frá desember. Í janúar 2024 var atvinnuleysið hins vegar 3,8%. Atvinnulausir voru 9.050 í lok janúar, 5.211 karlar og 3.839 konur. Þetta kemur fram í skýrslu frá Vinnumálastofnun.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí