
Jóhann Páll Jóhannsson ráðherra í ríkisstjórninni setti þetta á blað:
Fyrst misbuðu þau þjóðinni með lengsta málþófi sögunnar og létu eins og minnihlutinn hefði neitunarvald á Alþingi, jafnvel gagnvart stórum og stefnumarkandi málum ríkisstjórnar.
Svo hlaupa þau upp til handa og fóta yfir því að forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins heimsæki Ísland.
Sturlast yfir því að leiðtogi stærstu viðskiptablokkar heims, með mörgum okkar helstu vinaþjóðum, ræði við íslenska ráðamenn um viðskiptakjör Íslands og varnar- og öryggismál á breyttum tímum.
Nú eru svo settar fram samsæriskenningar um að Þorgerður Katrín ætli einhvern veginn að smygla Íslandi inn í Evrópusambandið og að Ursula von der Leyen taki við tilskipunum frá Kristrúnu Frostadóttur um það hvað hún eigi að segja á blaðamannafundum.
Þessar samsæriskenningar eru ekki settar fram af einhverjum bloggurum útiíbæ eða samfélagsmiðla-bottum heldur af helstu talsmönnum minnihlutans, gamalla og virðulegra stjórnmálaflokka á Alþingi.
Fólk sem talar svona, þyrlar upp hræðsluáróðri og beitir sér gegn vestrænni samvinnu með þessum hætti er upptekið við eitthvað allt annað en að gæta hagsmuna Íslands og gera samfélagið okkar betra.