Verðlaunadrengir unnu Músíktilaunir

Úrslit réðust í Músíktilraunum í gærkvöld og stóð tríóið Falinn gjóður uppi sem sigursveitin 2026. Hljómsveitina skipa: Aron Elí Arnarsson, Baldur Þórarinsson og Þorri Hrafnsson.

Hljómsveitin þótti frumleg og ekki síst þóttu lagatextar með miklum ágætum. Í samtali við Samstöðina á fyrir áramót hvatti Aron Elí eftir að hann vann ljóðakeppni, foreldra til að styrkja stöðu íslenskunnar með því að auka samræður við börnin. Ipadinn, samfélagsmiðlar og það allt gæti grafið undan íslenskunni, enda mest megnis enskt efni þar á ferð. Hann sagðist vera kommúnisti. Hér má hlusta á spjallið við Aron og heyra hann lesa eigið verðlaunaljóð:

Eftirfarandi hlutu viðurkenningar í Músíktilranum:

1. verðlaun: Falinn gjóður

2. verðlaun: Brenninetla

3. verðlaun: Lára

Hljómsveit fólksins: Gammosíur

Einstaklingsverðlaun og önnur verðlaun hlutu:

Söngvari: Lára Björk Hall – Gammosíur

Gítarleikari Músíktilrauna: Stígur Grendal Sævarsson – Brenninetla

Bassaleikari Músíktilrauna: Úlfhildur Júlía Stephensen – Gammosíur

Hljómborðsleikari Músíktilrauna: Baldur Þórarinsson – Falinn gjóður

Trommuleikari: Andri Eyfjörð – Myrkviði

Rafheili Músíktilrauna: Lára Rún Eggertsdóttir – Lára

Höfundaverðlaun FTT: Útumallt & appelsín

Viðurkenning fyrir textagerð á íslensku: Myrkviði.

Athygli vekur að Baldur Þórarinsson, sem er sellónemandi á framhaldsstigi við Menntaskóla í tónlist, lék á hljómborð í Falinn gjóður og var verðlaunaður sérstaklega fyrir.

Tveir drengjanna eru í Hagaskóla, allir eru þeir í 10. bekk.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí