Eyjamenn séð það svartara en lágflugið

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Eyjum, segir að Eyjamenn myndu frekar vilja fá frá Icelandair afsökunarbeiðni vegna þess að Icelandair sé hætt að fljúga til Vestmannaeyja, fremur en afsökunarbeiðni vegna lágflugs um helgina.

Á samfélagsmiðlum má sjá að sumir telja það storm í vatnsglasi hvað forráðamenn Icelandair hafa opinberlega rætt af miklum þunga um ætlað brot flugstjóra sem í lokaferð sinni sem flugstjóri um helgina flaug lágt yfir Eyjar. Ekkert tjón hlaust af og nutu farþegar þess mjög að sögn farþega í vélinni sem og a.m.k. flestir eyjamanna á jörðu niðri ef marka má frásagnir á félagsmiðlum.

Í frétt Vísis segir frá þessari afstöðu bæjarstjórans.

Icelandair hefur gengið svo langt að kæra eigin flugstjóra til lögreglu vegna málsins.

„Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ – Vísir

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí