Ásthildur Lóa Þórhallsdóttir Flokki fólksins hefur mælt fyrir merkilegu frumvarpi. Við lestur greinargerðarinnar vakna ótal spurningar um framgang fasteigna sem seldar eru nauðungarsölu. Má vera að sýslumenn og lögmenn almennt hafi ekki lesið lögin um nauðungarsölur? Eða er öllum sama um hag þeirra sem hafa misst eignir sínar?
„Meginefni frumvarpsins snýr að því að í lögum um nauðungarsölu verði meginreglan sú að þegar eign sem tekin er til nauðungarsölu er íbúðarhúsnæði og jafnframt lögheimili gerðarþola skuli nauðungarsala á eigninni fara fram á almennum markaði nema gerðarþoli óski sérstaklega eftir því að eignin verði seld á uppboði. Áfram verði þó heimilt að selja slíkar eignir á uppboði að beiðni gerðarþola eða samkvæmt heimildum sýslumanns. Hins vegar eru ekki lagðar til breytingar á þeirri meginreglu að aðrar eignir en lögheimili gerðarþola séu seldar á nauðungaruppboði.
Tilgangur nauðungarsölu hefur frá öndverðu verið sá að kröfuhafi fái fullar efndir kröfu sinnar. Eitt af markmiðum laganna er þó jafnframt að stuðla að því að sem hæst verð fáist fyrir eignir við nauðungarsölu enda er líklegra að kröfuhafi fái fullar efndir ef eign selst á sem hæstu verði. Við gerð þessa frumvarps er auk þess horft til sjónarmiða og hagsmuna skuldara við nauðungarsölu á fasteignum þannig að þeir standi uppi með minni skuldir. Þetta skiptir sérstaklega miklu máli þegar verið er að selja heimili skuldara.“
Lesum áfram:
„Með lögum frá 1991 var gerðarþola eða gerðarbeiðanda veitt heimild til að óska eftir því að nauðungarsala eignar færi fram á almennum markaði. Þrátt fyrir þetta ákvæði kom fram í svari dómsmálaráðuneytisins við fyrirspurn minni um nauðungarsölu fasteigna á almennum markaði að þessi heimild hefði verið lítið sem ekkert nýtt. Þannig kom fram að á árunum 2013–2023 voru einungis átta sinnum gefin út afsöl vegna fasteigna sem seldar voru á nauðungarsölu á almennum markaði. Á sama tíu ára tímabili voru gefin út afsöl vegna 4.140 fasteigna sem seldar voru á framhaldsuppboði. Átta eignir á móti 4.140 eignum segir sína sögu. Hlutfallið er aðeins 0,2% og greinilegt að úrræðið er verulega vannýtt. Þessi regla hefur þannig aldrei náð nokkurri fótfestu,“ svo sagði Ásthildur Lóa:
„Ég hef persónulega reynslu af því að fara fram á sölu á almennum markaði árið 2015. Þá virtist enginn hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu hafa heyrt af þessum möguleika þótt úrræðið hafi á þeim tíma þegar staðið til boða í 24 ár. Ef litið er til leiðbeiningarskyldu sýslumanns og þess að honum ber að upplýsa gerðarþola um rétt sinn er ljóst að úrbóta er þörf. Það hlýtur að vekja spurningar að einungis átta eignir hafi verið seldar á almennum markaði á sama tíma og 4.140 fasteignir voru seldar á framhaldsuppboði. Það er því full þörf á að kveða fastar á í lögum um að meginreglan eigi að vera sala á almennum markaði. Þegar gerðarþola eða gerðarbeiðanda var fyrst veitt heimild til að óska eftir því að nauðungarsala eignar gæti farið fram á almennum markaði, með lögum nr. 90/1991, töldu frumvarpshöfundar að þáverandi fyrirkomulag nauðungaruppboða, þar sem almenn sala eigna var ekki lögfest, hefði ekki leitt til þess að almennt fengist lágt verð fyrir eignir við nauðungarsölu. Það mat stangaðist hins vegar á við skoðanir margra þeirra sem komu að framkvæmd nauðungarsölu og ekki var úr þessum ágreiningi skorið. Í greinargerð með frumvarpinu frá 1991 kom fram að nánast ógerlegt væri að sannreyna hvort eða að hvaða marki fullyrðingar um lágt söluverð eigna á uppboðum ættu við rök að styðjast. Til þess þyrfti að bera saman söluverð talsverðs fjölda eigna við nauðungarsölu á mismunandi stöðum á landinu við það verð sem ætla mætti með áreiðanlegum hætti að fengist hefði fyrir sömu eignir í frjálsum viðskiptum. Slíkur samanburður væri nánast ómögulegur.
Nær tveimur áratugum síðar, árið 2010, var engu að síður unnin skýrsla um nauðungarsölur á Íslandi þar sem leitað var upplýsinga um framkvæmd þeirra. Leitað var til tveggja sýslumannsembætta: Sýslumannsins á Akureyri og Sýslumannsins í Reykjavík. Samkvæmt skýrslunni seldust 90% allra fasteigna sem seldar voru á nauðungaruppboði í umdæmi Sýslumannsins á Akureyri á árunum 2001–2009 fyrir lægra verð en sem nam fasteignamati þeirra. Yfir 60% eigna í umdæmi Sýslumannsins í Reykjavík seldust á nauðungarsölu á árunum 2007–2009 á verði langt undir þágildandi fasteignamati. Velta má fyrir sér hvort lágt hlutfall nauðungarsölu á almennum markaði stafi af því að gerðarþolum hafi ekki verið kynnt úrræðið nægilega vel eða hvort þeir telji almennt að úrræðið verði þeim ekki hagstætt.“