Það ætti ekki að þurfa að segja þér að tæma ruslið, Dagur

Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram lausnir í sorphirðumálum Reykjavíkur, sem ættu að vera öllum augljósar.

Ruslatunnur í Reykjavík eru að yfirfyllast. Í fréttum má sjá hvernig pokar og annað rusl hefur verið að safnast saman við gáma og tunnur. Ástæðan er sú að ekki er verið að tæma þær nógu oft. Þegar ekki er hægt að henda rusli í tunnur lengur, er ljóst að eina leiðin er að skilja það eftir fyrir utan.

Grenndargámar í Reykjavík eru einungis tæmdir á 2ja mánaða fresti. Þar að auki eru engin viðmið uppi um hirðutíðni minni ruslatunna á borgarlandinu. Dæmi um slíkar tunnur eru þær sem hengdar eru við bekki eða ljósastaura. Þetta ástand er ekki nógu gott.

Ruslið flæðir yfir um og það er eins og enginn ætli að bregðast á neinn hátt við. Það er tvennt sem myndi laga stöðuna nokkuð fljótt. Í fyrsta lagi þarf að tæma grenndargámana oftar. Að tæma þá á 2ja mánaða fresti er greinilega ekki nóg. Í öðru lagi þarf að setja upp reglur um hirðutíðni á minni ruslatunnum í borginni, því þær eru ekki til staðar núna.

Samstöðin er umræðu- og fréttavettvangur sem studdur er af almenningi í gegnum Alþýðufélagið. Ef þér líkar efni Samstöðvarinnar getur þú eflt hana með því að gerast einskonar áskrifandi sem félagi í Alþýðufélaginu.

Skrá mig arrow_forward
Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí