Rauða borðið - Vikuskammtur
Fréttavikan gerð upp í skemmtilegu spjalli með áhugaverðu fólki.
Þættir
Vikuskammtur: Vika 51arrow_forward
Gestir borðins að þessu sinni eru úr öllum áttum og hyggjast fara um víðan völl um liðna viðburðaríka fréttaviku. Á boðstólnum eru skipulag í Breiðholti, vinnumansal, ný ríkisstjórn, hvalveiðar, rafbyssur, fyrirtækjaleiksskólar, stúdentar og Iceguys. Þetta eru þau Saga Kjartansdóttir así, Lísa Margrét Gunnarsdóttir, formaður lís, Jón D Ásgeirsson arkitekt og Stefán Víðisson.
Vikuskammtur: Vika 49arrow_forward
Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Björn Halldórsson rithöfundur, Hólmar Hólm verkefnastjóri og ritstjóri, Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur og Ingimar Karl Helgason grunnskólakennari og fyrrverandi fréttamaður og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af stjórnarmyndun, átökum, hernaði og von um betri tíð.
Vikuskammtur: Vika 49arrow_forward
Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Vera Wonder Sölvadóttir kvikmyndaleikstjóri, Atli Bollason myndlistarmaður, Natalie G. Gunnarsdóttir plötusnúður og Hye Joung Park myndlistarkona og kennari og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af kosningum og mati hverju þær breyta, hvalveiðileyfi, þjóðarmorði og átökum í heimsmálum.
Vikuskammtur: Vika 48arrow_forward
Það er líf og fjör á endaspretti kosningabaráttunnar og við upphaf aðventu. Við rennum yfir fréttir vikunnar með frambjóðendum sósíalista þeim Maríu Péturs og Guðmundi Auðuns. Þau njóta liðsinnis tveggja gjörningalistamanna, pólitísku mannréttinda-trúðanna Margots og Plongs. Þar sem Plong er hljóðlátur trúður verður Margrét Baldursdóttir, túlkur einnig með í för en hún ku túlka hugsanir.
Vikuskammtur: Vika 47arrow_forward
Kosningabaráttan, lög sem brjóta stjórnarskrá, framferði formanns Miðflokksins fyrir norðan og margt fleira skemmtilegt og óskemmtilegt verður til umræðu í Vikuskammti. Fréttir vikunnar og tíðandi líðandi stundar verður krufinn. Til þess mæta í beina útsendingu til Björns Þorlákssonar þau Kári Jónsson, Hjörtur Hjartarson, Magnea Marínósdóttir og Atli Þór Fanndal.
Vikuskammtur: Vika 46arrow_forward
Náttúruhamfarir, umhverfishamfarir, framboðshamfarir en líka grín og gleði verður til umræðu í Vikuskammtinum að þessu sinni. Tíðindarík vika að baki og veitir ekki af eldfjallafræðingi til að greina stöðuna! Þau Sigurrós Eggertsdóttir, Helga Sigrún Harðardóttir, Þorvaldur Þórðarson og Páll Valur Björnsson leiða saman hesta sína. Þau ræða fréttir vikunnar og tíðaranda líðandi stundar. Björn Þorláks stýrir umræðunum
Vikuskammtur: Vika 45arrow_forward
Við fáum góða gesti til að renna yfir tíðindi vikunnar með okkur. Þetta eru þau Helga Þórey Jónsdóttir menningarfræðingur, Óli Dóri tónlistarstjóri og fjölmiðlamaður, Ágúst Ólafur Ágústsson fyrrum þingmaður og nú kennari við Háskóla Íslands og Katla Ásgeirsdóttir plötusnúður.
Vikuskammtur: Vika 44arrow_forward
Að Rauða borðinu í beina útsendingu í Vikuskammtinn koma til að ræða frjálslega út frá fréttum vikunnar þau Ása Lind Finnbogadóttir framhaldsskólakennari og plötusnúður, Valur Gunnarsson rithöfundur, Sigrún Sandra Ólafsdóttir endurvinnsluáhugamanneskja, Arnar Páll Gunnlaugsson bifvélavirki og frambjóðandi og Þór Martinsson sagnfræðingur. Umsjón með umræðunni hefur Oddný Eir.
Vikuskammtur: Vika 43arrow_forward
Í vikuskammt að þessu sinni koma þau Valgerður Árnadóttir, talskona Hvalavina, Yngvi Ómar Sighvatsson, tölvuleikjahönnuður og varaformaður leigjendasamtakanna, Sunna Ingólfsdóttir, mannfræðingur, kennari og tónlistarkona og Geir Sigurðsson, rithöfundur og prófessor. Umsjón hefur Oddný Eir Ævarsdóttir.
Vikuskammtur – Vika 42arrow_forward
Oddný Eir ræðir fréttir vikunnar með góðum gestum en að þessu sinni mæta þau Jovana Pavlović, Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir, Jón Ferdínand Estherarson og Rakel McMahon í Vikuskammt við Rauða borðið.