Rauða borðið

Róttæk samfélagsumræða

Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.

Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson

Þættir

Langtíma-covid, femínismi, Bændablaðið, brennivín og sósíalismi

Langtíma-covid, femínismi, Bændablaðið, brennivín og sósíalismiarrow_forward

S06 E043 — 02/24/2025

Gunnar Svanbergsson sjúkraþjálfari ríður á vaðið í dagskránni með áhrifaríku viðtali við Björn Þorláks. Gunnar segir þúsundir langveikra Íslendinga hafa fallið milli skips og bryggju hjá heilbrigðisyfirvöldum. Gunnar er sjálfur í hópi þeirra sem þjást af ,,longcovid.“ Hann lýsir persónulegum áskorunum sem felast í raun í því að læra að lifa upp á nýtt. Þau Guðrún Hulda Pálsdóttir, fráfarandi ritstjóri Bændablaðsins, og Skúli Bragi Geirdal hjá Fjölmiðlanefnd ræða stöðu blaðamennsku hér á landi. Bændablaðinu hefur í fyrsta skipti í Íslandssögunni tekist að verða meira lesið en Mogginn á höfuðborgarsvæðinu. Mahdya Malik, Najlaa Attaallah og Zara Amad frá Samtökum kvenna af erlendum uppruna tala við Maríu Lilju um það sem kallast: Minn hijab mitt val! Þær ræða kvenréttindi og óréttlætið í hvítum femínisma sem og valdeflingu sem felst í því að vera með hijab. Við segjum einnig fréttir frá ríkjum sósíalismans. Eyjólfur Eyvindsson og Kristbjörg Eva Andersen Ramos fara yfir það sem helst er að eiga sér stað í Suður Ameríku. Og við ljúkum þætti kvöldsins með gagnrýninni umræðu um áfengismál. Á sama tíma og WHO hrósar Íslendingum fyrir aðhaldsstefnu hyllir undir breytingar sem gætu gert illt verra. Árni Guðmundsson forvarnarráðgjafi ræðir áfengismál og lýðheilsu.

Vikuskammtur: Vika 8

Vikuskammtur: Vika 8arrow_forward

S06 E042 — 02/21/2025

Grín á Alþingi, heimur á heljarþröm, nýr borgarmeirihluti, landsfundur sjalla, hrútspungafýla og fleiri spennandi umræðuefni verða krufin með gestum Vikuskammtsins að þessu sinni. Gestir eru þau Snorri Ásmundsson listamaður, Kristín Erna Arnardóttir kvikmyndagerðarkona, Karl Héðinn Kristjánsson fræðslufulltrúi og Lenya Rún Taha Karim lögfræðingur. Þátturinn er í umsjá Björns Þorláks

Trump, hjúkrun, próf, sjálfshatur, trans og tengslabylting

Trump, hjúkrun, próf, sjálfshatur, trans og tengslabyltingarrow_forward

S06 E041 — 02/20/2025

Sveinn Máni Jóhannesson sagnfræðingur ræðir um áhrif Trump á Evrópu og alþjóðastjórnmálin við Gunnar Smára. Hann ræðir síðan við þær sem vilja verða formenn Félags hjúkrunarfræðinga um kjaramál, starfsaðstæður og heilbrigðiskerfið. Helga Rósa Másdóttir, Jórunn Ósk Frímannsdóttir Jensen og Hulda Björg Óladóttir koma að Rauða borðinu. Björn Þorláks hringir í Þorlák Axel Jónsson, kennara við Háskólann á Akureyri, sem minnir á að samræmd próf voru tekin upp til að vinna gegn stéttaskiptingu. Inga Sigrún Atladóttir, kennari, skólastjórnandi, guðfræðingur, rithöfundur ræðir við Oddnýju Eir um aðgerðir gegn því sjálfshatri sem börn virðast þróa með sér innan skólakerfisins. Arna Magnea Danks ræðir við Oddnýju Eir um áframhaldandi útrýmingu trans fólks og setur í samhengi við almenna mannréttindabaráttu Ólafur Grétar Gunnarsson fjölskyldu- og hjónaráðgjafi segir Gunnari Smára frá  tengslabyltingu karlmanna, lakari kvenheilsu og álagi á barnafjölskyldur.

Úkraína, reynsluboltar, spilling, ópera, uppskera og kvóti

Úkraína, reynsluboltar, spilling, ópera, uppskera og kvótiarrow_forward

S06 E040 — 02/19/2025

Tjörvi Schiöth doktorsnemi greinir breytta stöðu í Úkraínu og Evrópu eftir stefnubreytingu ríkisstjórnar Trump í samtali við Gunnar Smára. Karl Garðarsson, Guðmundur Þ. Ragnarsson og Steingerður Steinarsdóttir ræða málin við Sigurjón Magnúsi. Víða var komið við, í Úkraínu, hér og þar í Evrópu, í Hvíta húsi Trump, í borgarstjórn og ríkisstjórn. Þórður Snær Júlíusson er gestur Björns Þorlákssonar í umræðu um íslenska spillingu. Þórður er sérfræðingur íslensku efnahagslífi og ræðir það sem hann nefnir strokuspillingu. Þórunn Guðmundsdóttir samdi óperuna Hliðarspor til að framlengja söguna sem hófst í Rakaranum frá Sevilla og hélt áfram með Brúðkaupi Fígarós. Hún segir frá Gunnar Smára frá sýningunni með söngfólki: Hafsteinn Þórólfsson, María Konráðsdóttir og Guðrún Brjánsdóttir. Uppskeruhátíð. Listakonurnar Kolbrún Dögg Kjartansdóttir og Margrét M. Norðdahl ræða við Oddnýju Eir um mikilvægi uppskeruhátíða í baráttu fyrir betra lífi. Björn Ólafsson, gamall sjómaður með meiru, ræðir fiskveiðiráðgjöf Hafró við nafna sinn Þorláksson með gagnrýnum hætti.

Nató í neyð, Bubbi um Dylan, kjaramál, femínísk sagnfræði, nýr þingmaður og landnámsþorskurinn

Nató í neyð, Bubbi um Dylan, kjaramál, femínísk sagnfræði, nýr þingmaður og landnámsþorskurinnarrow_forward

S06 E039 — 02/18/2025

Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur og Kristinn Hrafnsson blaðamaður ræða um upplausn í Nató og öryggishagsmuni Íslands og Evrópu í samtali við Gunnar Smára. Hann fær síðan Bubba Morthens til að segja okkur frá áhrifum Bob Dylan á sig sem tónlistarmanns, skálds, manneskju og ástmanns. Kolbrún Halldórsdóttir ræðir við Björn Þorláks kjaramál og virðingarleysi gagnvart tilteknum starfsstéttum. Við hleypum nýjum lið af stokkunum, sem við köllum „óþekkta þingmanninn“. Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ríður á vaðið með Birni Þorláks. María Lilja ræðir sagnfræði við Agnesi Jónasdóttur, sem situr í stjórn Sagnfræðingafélags Íslands. Hvað kennir sagan okkur um brautryðjendur í hópi íslenskra kvenna? Í lokin koma Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir líffræðingur og Árni Daníel Júlíusson sagnfræðingur og segja Gunnar Smára frá því hvernig þorskurinn hefur breyst frá landnámi, en þá var hann stærri og eldri en hann er í dag.

Ræstingar, fjölmiðlar misbeiting valds, Heim og pólitík

Ræstingar, fjölmiðlar misbeiting valds, Heim og pólitíkarrow_forward

S06 E038 — 02/17/2025

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar lýsir fyrir Gunnar Smára hvernig ræstingarfyrirtæki hafa grafið undan lífskjörum ræstingakvenna og í ofan á lag haft af þeim umsamdar kjarabætur. Hiti varð í umræðunni við Rauða borðið vegna Moggans og innflytjendamála í dag þegar Valur Grettisson Heimildinni, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp Samstöðinni og Ólafur Arnarson DV, gestir Björns Þorlákssonar létu gamminn geisa í umræðu um fjölmiðla. Björn Leví Gunnarsson fyrrverandi þingmaður Pírata tekur stöðuna í stjórnmálunum, ræðir við Oddnýju Eir um misnotkun valds og óhjákvæmilega sprengingu. Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir leikskáld og Magnús Geir Þórðarson leikstjóri og leikhússtjóri segja frá Heim, nýju verki Hrafnhildar í leikstjórn Magnúsar í spjalli við Gunnar Smára. Vilhjálmur Bjarnason fyrrum þingmaður ræddi um daginn og veginn við Sigurjón Magnús og sagði honum sögur.

Helgi-spjall: Þórhildur Þorleifs

Helgi-spjall: Þórhildur Þorleifsarrow_forward

S06 E037 — 02/15/2025

Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri og fyrrum þingkona ræðir um lífið og leikhúsið, uppvöxt og þroska, feminisma, pólitík, átök og sigra.

Vikuskammtur: Vika 7

Vikuskammtur: Vika 7arrow_forward

S06 E036 — 02/14/2025

Efnistök að þessu sinni verða, á meðal annars, sviptingar í borginni, ofbeldi í barnaskóla, brim við Þorlákshöfn, Guðrún Hafsteinsdóttir, Trump, Pútín, Úkraína, vopnahlé á Gaza, Kendrick Lamar og Superbowl ofl. Til leiks mæta þau Daníel Thor Bjarnason þroskaþjálfi, Anita DaSilva, úr ungliðahreyfingu sósíalista, Laufey Líndal Ólafsdóttir, tæknimaður og Valgerður Árnadóttir, fyrrverandi varaþingmaður Pírata og dýravinur.

Ógn í skólanum, harka í íþróttum, Hafró, ljóð, karlmennska og breytingarskeiðið

Ógn í skólanum, harka í íþróttum, Hafró, ljóð, karlmennska og breytingarskeiðiðarrow_forward

S06 E035 — 02/13/2025

Hermann Austmar, faðir stúlku í Breiðholtsskóla, segir frá ógnarástandi í skólanum, en margir nemendur treysta sér ekki til að mæta í skólann. Darina Andreys, Hanna Þráinsdóttir og Dzana Crnac spila körfubolta með Aþenu, íþróttafélagi sem Brynjar Karl Sigurðsson veitir forstöðu, þjálfari sem er gagnrýndur fyrir yfirgang og dónaskap gagnvart leikmönnum. Hvað segja stelpurnar? Sá þingmaður sem hefur verið einna mest á milli tanna fólksins í landinu, Sigurjón Þórðarson, mætir á Samstöðina í kvöld og ræðir sjávarútveg, Hafró og fleiri mál ásamt Grétari Mar Jónssyni. Skáldkonan Margrét Lóa kemur  að Rauða borðinu í bókaspjall við Vigdísi Grímsdóttur og Oddnýju Eir. Þær fara yfir fjörutíu ára feril skáldkonunnar í ljóðum, hún segir frá nýjustu bók sinni, verðlaunaritinu Pólstjarnan leiðir okkur heim og sýnir okkur hinar ljóðabækurnar sem margar eru bókverk. Ævar Þór Benediktsson þýðandi og leikari og Hilmir Jensson leikstjóri koma og segja frá leikritinu Kapteini Frábærum, sem fjallar um karlmennsku og sorg. Í lokin kemur Elín Ósk Óskarsdóttir óperusöngkona og segir okkur frá því þegar hún  veiktist, hvers vegna hún gat ekki sungið og hvernig hún fann röddina aftur.

Spilling, öryggi, pólitík, jaðarljóð, klassík, brúarsmíði og heilnæmi

Spilling, öryggi, pólitík, jaðarljóð, klassík, brúarsmíði og heilnæmiarrow_forward

S06 E034 — 02/12/2025

Þorvaldur Logason stjórnarformaður Transparency, Jóhann Hauksson blaðamaður og Þorvaldur Gylfason hagfræðingur eru sammála um að mæliskekkja hafi verið gerð varðandi spillingu á Íslandi fremur en að spilling sé á undanhaldi. Valur Ingimundarson prófessor ræðir öryggismál Evrópu í ljósi ummæla og stefnu Donald Trump. Sigurjón Magnús fær til sín reynslubolta að ræða daginn og veginn: Drífa Sigfúsdóttir varaformaður Landssambands eldri borgara, Ólafur Þ. Harðarson prófessor og Arnar Björnsson fréttamaður fara yfir stöðuna. Þorbera Fjölnisdóttir, varaformaður NPA miðstöðvar og Sigríður Jónsdóttir, aktivisti, listakona, liðskonur Tabú, femínískrar fötlunarhreyfingar, koma að Rauða borðinu og segja okkur frá Ljóðakvöldi RVK Poetics #17: Frá hjartarótum: Skrif eftir fatlaðar konur og jaðarsett kyn. Tónlistarnemarnir Sól Björnsdóttir og Sóley Lóa Smáradóttir taka á móti Hildigunni Halldórsdóttur fiðluleikara og Helga Jónssyni slagverkskennara og ræða tónlist og tónlistarkennslu. Auður Aðalsteinsdóttir, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands í Þingeyjarsveit og Svartárkotssysturnar Sigurlína Tryggvadóttir og Guðrún S. Tryggvadóttir, sauðfjár og ferðaþjónustubændur, huldukonur í stjórn Huldu-Náttúruhugvísindaseturs, ræða um brúarsmíðina til framtíðar. Harpa Fönn Sigurjónsdóttir, lögfræðingur og umhverfissinni og Guðrún Birna le Sage, framkvæmdastjóri SUM og verkefnastjóri Pietasamtakanna segja okkur frá Samtökum um áhrif umhverfis á heilsu, helstu ógnum og mikilvægi heilnæms umhverfis fyrir okkur öll.

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí