Vísitala neysluverðs hefur hækkað um tæp 10% á einu ári

Matarkarfan verður sífellt þyngri en Vísitala neysluverðs heldur áfram að hækka. Samkvæmt Hagstofu Íslands er hún miðað við verðlag í mars 2023 580,7 stig og hækkar því um 0,59% frá síðasta mánuði. Vísitalan án húsnæðisliðs er 481,9 stig og hækkar um 0,52% frá því í febrúar.

Verð á matvöru og drykkjarvörum hækkaði um 0,7% og verð á fötum og skóm 4,3%. Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði og reiknuð húsaleiga hækkaði um 0,8% en verð á húsgögnum lækkaði um 1,7%.

Vísitala neysluverðs hefur einnig samkvæmt Hagstofu Íslands hækkað um 9,8% síðustu 12 mánuði 8,6% án húsnæðisliðsins.

Miðað er við stöðu vísitölunnar í mars fyrir útreikning á verðtryggingu fram til maí 2023. Þá breytist vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar eftir lánskjaravísitölu sem er 11,466 stig fyrir maí 2023

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí