Lífslíkur kvenna á Íslandi minnka á milli ára

Í tilkynningu Hagstofunnar sést að lífslíkur kvenna á Íslandi er nú þær sömu og var 2010. Á sama tíma hafa karlar bætt við sig 1,2 árum. Í tilkynningunni sést líka að konur um þrítugt sem hafa grunnskólapróf og þá líklega lágar tekjur geta vænst þess að lifa rúmum fjórum árum skemur en konur með háskólamenntun. Hjá körlum er þetta gjald stéttaskiptingar rúm fimm ár. Lágtekjukarlinn getur vænst þess að lifa tæp tólf ár á eftirlaunum en sá háskólamenntaði í sautján ár.

Í tilkynningu Hagstofunnar segir að meðalævilengd karla á Íslandi hafi verið 80,9 ár árið 2022 og meðalævilengd kvenna 83,8 ár en meðalævilengd sýnir hve mörg ár einstaklingur á að meðaltali ólifuð við fæðingu ef miðað er við aldursbundna dánartíðni mannfjöldans. Aldursbundin dánartíðni hefur lækkað á undanförnum áratugum og má því vænta þess að fólk lifi að jafnaði lengur en reiknuð meðalævilengd segir til um.

Frá árinu 1988 hafa karlar bætt við sig rúmlega sex árum og konur rúmlega fjórum í meðalævilengd. Ævilengdin kvenna minnkaði hins vegar um 0,3 ár frá árinu 2021 á meðan hún stóð í stað hjá körlum á milli 2021 og 2022.

Á tíu ára tímabili (2012–2021) var meðalævi í Evrópu lengst í San Marínó eða 85,6 ár. Því næst kom Sviss með 83,4 ár. Fast á hæla þeirra komu Spánn (83,2) og Ítalía (83,0). Liechtenstein og Ísland voru í sjötta og sjöunda sæti með ævilengd upp á 82,9 og 82,8 ár. Styst var meðalævilengd karla í Úkraínu (72,6), Hvíta-Rússlandi (73,6) og Georgíu (73,6).

Þegar einungis er horft til síðustu þriggja ára, 2019 til 2021, og tilraun gerð til þess að meta þau áhrif sem kórónuveirufaraldurinn hefur haft á dánartíðni, og þar með ævilengd, kemur í ljós að Búlgaría virðist hafa orðið verst úti vegna faraldursins af þeim Evrópuríkjum sem þegar hafa skilað inn gögnum fyrir árið 2021 en þar styttist ævilengdin um 3,7 ár. Þar á eftir kemur Albanía (3,6), Norður-Makedónía (3,4) og Serbía og Slóvakía þar sem ævilengdin styttist um 3,2 ár.

Það land sem samkvæmt þessum mælikvarða virðist hafa farið best út úr faraldrinum er Noregur en þar jókst ævilengdin á milli áranna 2019 og 2021 um 0,2 ár. Næst á eftir Noregi koma Liechtenstein (0,1) og Danmörk og Lúxemborg og Ísland en þar stóð ævilengdin í stað á milli áranna 2019 og 2021. Samkvæmt þessum lista er Ísland í 5. sæti yfir þau lönd sem virðast hafa komist einna best undan faraldrinum en þess ber að geta að gögn hafa enn ekki borist frá Bretlandi og Tyrklandi ásamt níu öðrum Evrópulöndum.

Ungbarnadauði í Evrópu þriðji minnsti á Íslandi

Árið 2022 létust 2.693 einstaklingar sem búsettir voru á Íslandi, 1.365 karlar og 1.328 konur. Dánartíðni var 7,0 látnir á hverja 1.000 íbúa og lækkaði um 0,7 milli ára.

Árið 2021 mældist ungbarnadauði á Íslandi 1,4 börn af hverjum 1.000 lifandi fæddum og þarf að fara aftur til ársins 2019 til að finna lægra gildi ungbarnadauða fyrir einstakt ár. Þegar hins vegar er horft á tíu ára tímabil (2012–2021) var ungbarnadauði á Íslandi að meðaltali 2,0 börn af hverjum 1.000 lifandi fæddum. Hvergi í Evrópu var ungbarnadauði jafn fátíður og hér nema í smáríkjunum Andorra og San Maríno. Ungbarnadauði var að meðaltali 2,0 barn í Finnlandi og í Slóveníu, 2,2 í Noregi og Eistlandi og 2,3 í Svíþjóð. Tíðastur var ungbarnadauði í Aserbaídsjan, 10,8 af hverjum 1.000 lifandi fæddum yfir tímabilið 2012-2021 samkvæmt tölum Hagstofa Evrópusambandsins (Eurostat).

Ævilengd háskólamenntaðra jókst mest

Árið 2022 var ólifuð meðalævi 30 ára kvenna með grunnskólamenntun 52,3 ár á meðan þrítugir grunnskólamenntaðir karlar máttu búast við því að lifa 48,9 ár til viðbótar. Konur með framhaldsskólamenntun gátu vænst þess að lifa tæplega þremur árum lengur en stallsystur þeirra með grunnskólamenntun eða í 55,3 ár frá 30 ára aldri. Munurinn var aðeins meiri á meðal karla þar sem ólifuð ævi 30 ára karla með framhaldsskólamenntun var að meðaltali 52,2 ár eða þremur árum lengri en karla með grunnskólamenntun.

Þrítugir háskólamenntaðir einstaklingar gátu átt von á því að lifa mun lengur en þeir sem minni menntun höfðu. Þannig var ætluð ólifuð meðalævi 30 ára kvenna með háskólamenntun 56,4 ár eða 4 árum lengri en þrítugra kvenna með grunnskólamenntun árið 2022. Ólifuð ævilengd 30 ára karla með háskólamenntun var 54,0 ár eða rúmum fimm árum lengri en þrítugra karla með grunnskólamenntun. Á milli áranna 2011-2022 jókst ævilengd háskólamenntaðra mest eða um 1,8 ár á meðan hún jókst um 1,3 ár á meðal framhaldsskólamenntaðra en minnkaði á meðal grunnskólamenntaðra um 0,3 ár.

Sjá nánar á vef Hagstofunnar.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí