Neysla ríka fólksins er að valda verðabólgunni

Stefán Ólafsson, prófessor emeritus við Háskóla Íslands, segir í aðsendri grein sem hann birtir á Vísi að Seðlabankinn horfi alveg framhjá orsökum þenslu í hagkerfinu. Stefán segir taumlausan ofvöxt ferðaþjónustunnar og einkaneyslu ríka fólksins á Íslandi helstu ástæðuna fyrir þenslunni. Seðlabankinn ákveður þó að ráðast á kaupmátt almennings.

Hér fyrir neðan má lesa pistil Stefáns í heild sinni.

Seðlabankinn segir réttilega að það sé þensla (ofhitun) í hagkerfinu, en horfir framhjá helstu orsökunum.

Helsta orsökin er taumlaus ofvöxtur ferðaþjónustunnar sem kallar á mikla fjárfestingu og gríðarlegan innflutning á vinnuafli, sem kyndir undir verðbólgu. Mikil einkaneysla efnaðri hluta þjóðarinnar er einnig mikilvæg orsök þenslunnar.

Til að bregðast við þessari ofþenslu ræðst seðlabankinn á kaupmátt almennings með fordæmalausum vaxtahækkunum, sem miða að því að draga niður kaupgetu þorra almennings (það kallar bankinn „að draga úr eftirspurn“ í hagkerfinu).

Verðbólguhvetjandi ofþenslu ferðaþjónustunnar og ríka fólksins í landinu er sem sé mætt með því að lækka kaupmátt almennings (einkum þeirra sem eru með húsnæðisskuldir).

En er það almenningur, tekju- og eignaminni helmingur þjóðarinnar, sem er helsta orsök ofþenslunnar, of mikillar eftirspurnar (neyslu og fjárfestinga)? Er það fólkið sem á erfitt með að ná endum saman sem er að eyða of miklu? Það er einmitt tæpur helmingur launafólks sem er í þeirri stöðu að ná endum illa saman, skv. nýrri könnun Vörðu.

Nei, öðru nær. Það er ferðaþjónustan og efnaðri helmingur þjóðarinnar sem eru helstu orsakavaldar ofþenslunnar og innlends verðbólguþrýstings.

En það er ekki verið að taka á þessum helstu orsakavöldum. Stór hluti ferðaþjónustunnar býr meira að segja við skattaafslátt (eru í lægra þrepi virðisaukaskatts) umfram fyrirtæki í öðrum atvinnugreinum. Ferðaþjónustan er sem sagt með skattahvata til vaxtar, einmitt þegar hún er að vaxta of hratt! Er eitthvert vit í þessu?

Ríkasta fólkið skuldar almennt minna í húsnæði sínu og finnur heldur ekki fyrir vaxtahækkunum vegna rúmrar kaupgetu sinnar. Úrræði Seðlabankans bíta því fyrst og fremst á kjörum þeirra sem minna eiga og lægri tekjur hafa – einmitt á þeim sem eru saklausir af ofþenslunni í samfélaginu.

Aðrar afleiðingar ofþenslu ferðaþjónustunnar og ríka fólksins eru t.d. gríðarleg aukning á innflutningi vinnuafls. Það hjálpar svo til við að eyðileggja húsnæðismarkaðinn fyrir almenningi, með skorti íbúða og gríðarlegum verðhækkunum. Óhóflegar vaxtahækkanir Seðlabankans draga nú orðið að auki úr framleiðslu nýrra íbúða fyrir lægri tekjuhópa. Vítahringur á húsnæðismarkaði magnast þannig og húsnæðisstuðningur stjórnvalda er alltof lítill. Meira að segja Alþjóðabankinn hefur orð á þessu (sjá hér).

Seðlabankastjórinn viðurkennir þetta í nýlegu blaðaviðtali og kallar það „þversögn á íbúðamarkaði“ (sjá hér)! En þetta endurspeglar einfaldlega ranga kenningu Seðlabankans um orsakir vandans og þar af leiðandi röng viðbrögð. Seðlabankastjóri sýnir þó engin merki um að breytinga sé að vænta á stefnunni, en hann kennir ríkisstjórninni um aðgerðaleysi.

Bankinn og ríkisstjórnin eru að hengja láglaunafólk og þá eignaminni fyrir þá eignameiri og hærra launuðu – og einnig fyrir eigendur ferðaþjónustufyrirtækja og annarra fyrirtækja sem búa nú við methagnað. Þetta er eins öfugsnúið og frekast má vera.

Spurningin er hvort Seðlabankinn ætli að genga enn lengra á þessu feigðarflani sínu í næstu vaxtaákvörðun?

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí