„Þetta er spilltasta þjóðfélag í heimi“

Samstöðin fékk viðbrögð fólks við sáttarboði Fjármálaeftirlitsins til Íslandsbanka vegna framkvæmdar á útboði 22,5% eignarhlut ríkisins í bankanum sem fór fram í mars í fyrra.

Öllum sem Samstöðin talaði við finnst þetta skjóta í skökku við, að Íslandsbanki falli á sátta boðið er sagt sanna að þarna var ekki allt með felldu. 

Sumir sögðu þetta klárt dæmi um spillingu en vildu ekki segja það í mynd. Einn eldri maður sem var spurður um það hvort honum finnist að bankastjórinn eigi að segja af sér svaraði „Það gerir ekki nokkur maður á Íslandi. Þetta er spilltasta þjóðfélag í heimi.”

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí