Veiðar á langreyðum stöðvaðar

Atvinnulíf 20. jún 2023

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur tekið ákvörðun um að stöðva tímabundið veiðar á langreyðum fram til 31. ágúst nk.

Eftirlitsskýrsla Matvælastofnunar um velferð hvala við veiðar á langreyðum barst ráðuneytinu í maí 2023 en niðurstaða skýrslunnar er að aflífun dýranna hafi tekið of langan tíma út frá meginmarkmiðum laga um velferð dýra.

Matvælastofnun fól í kjölfarið fagráði um velferð dýra að meta hvort veiðarnar geti yfirhöfuð uppfyllt markmið laga um velferð dýra. Álit fagráðsins barst matvælaráðuneytinu 19. júní og niðurstaða þess er að sú veiðiaðferð sem beitt er við veiðar á stórhvelum samræmist ekki lögum um velferð dýra.

Í ljósi þeirrar niðurstöðu er nauðsynlegt að fresta upphafi hvalveiðivertíðarinnar þannig að ráðrúm gefist til þess að kanna hvort unnt sé að tryggja að veiðarnar fari fram í samræmi við ákvæði laga um velferð dýra.

“Ég hef tekið ákvörðun um að stöðva hvalveiðar tímabundið í ljósi afdráttarlauss álits fagráðs um velferð dýra,” sagði matvælaráðherra. „Skilyrði laga um velferð dýra eru ófrávíkjanleg í mínum huga, geti stjórnvöld og leyfishafar ekki tryggt kröfur um velferð á þessi starfsemi sér ekki framtíð.“

Ráðuneytið mun kanna mögulegar úrbætur og lagaleg skilyrði þess að setja frekari takmarkanir á veiðarnar á grundvelli laga um velferð dýra og laga um hvalveiðar á komandi mánuðum og leita álits sérfræðinga og leyfishafa í því skyni.

Frétt af vef Stjórnarráðsins.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí