Erró teiknaði Oppenheimer á frímerki á Kúbu

Menning 24. júl 2023

Nökkvi Dan Elliðason, stærðfræðingur og sonur Elliða Vignissonar, bæjarstjóra í Ölfusi, skrifar um tengingu J. Roberts Oppenheimer við Ísland í grein á Vísi, kannski ekki sterka en áhugaverða.

„Árið 1967 á eftirbyltingartíma Kúbu, ferðaðist ERRÓ þangað af frumkvæði hins umdeilda fyrrverandi þjóðarleiðtoga landsins, Fidel Castro,“ skrifar Nökkvi Dan. „ERRÓ var einn 80 listamanna sem boðinn var þátttaka í samvinnu-vegglistaverki til heiðurs kúbönsku byltingarinnar og þjóðar. Samvinnuverkið var engin smásmíði en hverjum listamanni var úthlutað 8 x 10 metrum til listsköpunar. Það kemur ekki á óvart að ERRÓ fékk pláss í aflmiðju verksins. Á þessum tíma var ERRÓ heltekinn af hugmyndum um skrímsli en á veggpláss sitt málaði ERRÓ mynd af René Barrientos, forseta Bólivíu sem skrímsli. Þegar listamennirnir höfðu lokið listsköpuninni gat ERRÓ slappað af í Kúbu þar sem hann meðal annars fékk áhuga á vindlum og spilaði körfubolta með Fidel Castro sjálfum.„

Nökkvi Dan segi aðdáun ERRÓ á Castro og kúbönsku þjóðinni hafi ekki minnkaði í kjölfar ferðarinnar enda hafi áhrif ferðarinnar komið glöggt fram í nokkrum málverkum hans. Og að það sé þar sem tengsl ERRÓ við sögu Oppenheimer kemur fram.

Erró, Dossier Oppenheimer (2009). Þetta fjölprent má kaupa af Listasafni Reykjavíkur á 125 þús. kr.

„Eftir að listamennirnir voru farnir frá Kúbu gáfu kúbönsk póstyfirvöld út röð frímerkja með málverkum flestra þeirra sem tóku þátt í að mála vegginn góða,“ skrifar Nökkvi Dan. „Frá ERRÓ fengu kúbönsk yfirvöld, verkið „Oppenheimer-skýrslurnar“. Verkið vísar til þess hvernig Bandaríkjamenn niðurlægðu Dr. Robert Oppenheimer vegna þess að þeir töldu hann hættulega vinstrisinnaðan. Þrátt fyrir framlög Oppenheimer til vísindanna hafði niðurlægingin mikil áhrif á mannorð og starf hans.“

Frímerkið frá 1967.

„Póstyfirvöld í Kúbu hefðu e.t.v. þurft að gefa sér örlítið meiri tíma til þess að skoða verkið, því efst í hægra horni verksins var örlítil vangamynd af Fidel Castro,“ skrifar Nökkvi Dan. „Það væri nú ekki frásögu færandi nema af því að árum áður hafði Castro sett strangt bann við því að birtar yrðu myndir af honum á frímerkjum. Því er eina kúbanska frímerkið með mynd af Castro verkið „Oppenheimer-skýrslurnar“ eftir ERRÓ.“

Þetta er ekki rétt hjá Nökkva Dan því nokkur frímerki frá Kúbu eru til með myndum af Castro, t.d. þetta með Leoníd Brezhnev frá heimsókn hans til Kúbu.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí