Ótal sögur eru til af ástvinamissi. En sorgin er alltaf ný fyrir þeim sem syrgir.
Safnritið ÞÁ VARÐ MYRKUR AÐ MORGNI kemur út í vikunni. Hún er eftir ýmsa höfunda sem skrifa um napra reynslu af missi og trega. Flestir þeirra þekkja af eigin raun afleiðingar áfalls vegna ótímabærs og óvænts andláts ástvinar. Eitt flóknasta verkefni syrgjenda hverju sinni er að halda áfram að lifa með sorginni, segir í kynningarefni með bókinni.
„Hér mætast persónuleg reynsla og fræðileg sýn; heimspeki, guðfræði og bókmenntir fléttast saman við tregaljóð og hugleiðingar um harm og söknuð. Ólíkar raddir leita þannig leiða til að nálgast það sem erfitt er að færa í orð. Um leið er bókin áminning um mikilvægi þess að enginn standi einn eftir í myrkrinu.”
Verkið er ákall um breytta samfélagsgerð og betri stuðning við þau sem standa frammi fyrir skyndilegu fráfalli nákominna. Höfundar kafla bókarinnar eru Guðrún Karls Helgudóttir biskup, Björn Þorláksson, Ármann Jakobsson, Guðmundur Hálfdanarson, Hanna Óladóttir, Arnfríður Guðmundsdóttir, Guðrún Ingólfsdóttir, Steinunn Sigurðardóttir, Guðni Elísson, Halldóra Kristinsdóttir, Henry Alxander Henrysson, Sonja B. Jónsdóttir, Vilhjálmur Árnason, Margrét Eggertsdóttir, Sigrún Alba Sigurðardóttir, Torfi H. Tulinius, Rannveig Sverrisdóttir, Viðar Pálsson og Þórunn Sigurðardóttir auk erlendra höfunda.
Háskólaútgáfan gefur út ritið sem mun væntanlega verða til sölu í bókabúðum í lok þessarar viku. Ritstjórar eru Alda Björk Valdimarsdóttir, Guðni Elísson og Þórunn Sigurðardóttir.
Guðni, höfundur Ljósgildrunnar, mætir á Samstöðina næsta þriðjudag í fjáröflunarátaki Samstöðvarinnar í beinni útsendingu og ræðir þá ítarlega innihald bókarinnar.