Hafrannsóknastofnun hefur gefið út nýja rannsókn „Erfðablöndun villts íslensks lax (Salmo salar) og eldislax af norskum uppruna“ þar sem staðfest er töluverð erfðablöndun við eldislax.
133 fyrstu kynslóðar blendingar (afkvæmi eldislaxa og villtra laxa) fundust í 17 ám. Eldri blöndun (önnur kynslóð eða eldir) greindist í 141 seiðum í 26 ám. Fyrstu kynslóðar blendingar virtust algengari á Vestfjörðum en Austfjörðum í rannsókninni en laxeldi á Austfjörðum er bæði yngra og minna en laxeldið fyrir vestan.
Frekari rannsókna er þörf
„Þessi viðamikla rannsókn staðfestir mikilvægi frekari rannsókna. Við þurfum að skoða kynslóðaskiptingu blendinganna ásamt umfangi þeirra og orsökum dreifinga eldri blöndunar.“ sagði Guðni Guðbergsson, Sviðsstjóri ferskvatns- og eldissvið
Rannsakendur kalla eftir fleiri rannsóknum á erfðablöndun laxins. Erfðablöndun hefur nú þegar orðið við hlutfallslega lítið eldismagn. Rannsóknina má skoða hér.