„Kerfið sérstaklega ósanngjarnt gagnvart þorra landsmanna sem eiga réttindi hjá lífeyrissjóðunum“

„Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að barátta eldri borgara fyrir bættum kjörum nái ekki fram að ganga nema með tilstuðlan aðila vinnumarkaðarins,“ segir Hrafn Magnússon, fyrrverandi framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, í færslu sem hann birtir á Facebook.

Hrafn segir nauðsynlegt að endurskoða almannatryggingakerfið, þar sem kerfið sé bæði ósanngjarnt og festi eldri borgara í fátæktargildru. „Eitt fyrsta skrefið er að fram fari endurskoðun á almannatryggingakerfinu. Síðast þegar lögum um almannatryggingar var breytt haustið 2016 var það gert á þeim forsendum að nauðsynlegt væri að einfalda kerfið og sameina bótaflokka,“ segir Hrafn.

„Niðurstaðan varð hins vegar sú að mínu mati að kerfið var gert sérstaklega ósanngjarnt gagnvart þorra landsmanna sem eiga réttindi hjá lífeyrissjóðunum. Þannig urðu lífeyrissjóðatekjur fyrir mun meiri skerðingum en aðrar tekjur. Grunnlífeyrir almannatrygginga var felldur niður, frítekjumörk nánast afmáð og stefnt að því að gera almannatryggingakerfið að eins konar fátæktarstofnun.“

Hrafn segir að lokum að samtök aldraðra verði að berjast af hörku fyrir heildarendurskoðun kerfisins. „Við endurskoðun almannatrygginga þurfa samtök aldraðra að koma að með fullum þunga. Einfaldar leiðréttingar með hækkun frítekjumarka og hlutfallslega minni skerðingum er góðra gjalda verð, en heildarendurskoðun almannatrygginga er hins vegar mál málanna.“

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí