Daníel varamaður Svandísar hafði sagt sig úr Vg

Miðað við úrslit síðustu kosninga hefði Daníel E. Arnarsson, framkvæmdastjóri Samtakanna ’78, átt að taka sæti Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra á þingi í veikindaleyfi hennar. Daníel hefur hins vegar sagt sig úr Vg og því tekur Brynhildur Björnsdóttir, blaðamaður og söngkona, sæti á þingi.

Daníel sagði sig úr Vg þegar flokkurinn studdi útlendingafrumvarp Jóns Gunnarssonar þáverandi dómsmálaráðherra í mars í fyrra. Þá skrifaði Daníel á Facebook-síðu sína:

„Í gærkvöldi var útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra samþykkt. Frumvarp sem fjöldi mannréttinda- og hjálparsamtaka hafa barist gegn enda skerðir það réttindi eins viðkvæmasta og jaðarsettasta hóp okkar samfélags; fólk sem leitar að alþjóðlegri vernd. Það er ekki að ástæðulausu að frumvarpið mætti jafnsterkri andstöðu líkt og raun ber vitni.

Þegar ég bauð mig fram í prófkjöri VG 2021 þá var eitt af mínum áherslumálum meiri mannúð þegar kemur að þessum hópi. Ég fékk fjölda fólks til að ganga til liðs við hreyfinguna, fólk sem var mér sammála í þessum efnum og ég fékk mikinn stuðning frá þessum einstaklingum. Fyrir það verð ég ávallt þakklátur.

Það eru engin stjórnmál án ábyrgðar, og ég finn til ábyrgðar á þessari stundu. Ég var alla tíð á móti þessu frumvarpi og gerði mitt allra besta til þess að stöðva það. Það tókst ekki. Því verð ég að bera ákveðna ábyrgð og nokkrum mínútum eftir að þingfólk Vinstri grænna kaus með þessu frumvarpi þá skráði ég mig úr hreyfingunni. Ekki einungis vonbrigðanna vegna.

Ég hef unnið með VG í 17 ár, lengur en hálfa ævi. Ég horfi ekki bara á VG sem stjórnmálahreyfingu heldur er fólkið í VG fjölskyldan mín, fólk sem ól mig upp. Þess vegna eru þessi skref afskaplega þung. Mér þykir enn afar vænt um fólkið í VG en því miður þá get ég ekki staðið á bakvið hreyfingu sem samþykkir skerðingu á réttindum til eins viðkvæmasta hóp samfélagsins.

Að lokum. Ég átta mig á að ég er lýðræðislega kjörinn varaþingmaður hreyfingarinnar. Ef ég verð kallaður inn á þing þá mun ég ekki taka sæti heldur vísa áfram á næstu manneskju á lista VG í Reykjavíkurkjördæmi suður.“

Brynhildur var í fjórða sæti í Reykjavík suður. Á eftir henni á listanum var Elva Hrönn Hjartardóttir, sérfræðingur hjá VR og fyrrum formannsframbjóðandi. Hún hefur líka sagt sig úr Vg, af sömu ástæðu og Daníel. Á eftir henni kom á listanum Sveinn Rúnar Hauksson læknir, sem ætla má að sé óánægður með frammistöðu síns flokks gagnvart hryllingnum á Gaza.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí