Svandís segir álit umboðsmanns ekki kalla á afsögn

„Ráðuneyti mitt hefur rýnt álitið og lögfræðileg niðurstaða þess er sú að það gefi ekki tilefni til sérstakra viðbragða. Það er í samræmi við niðurstöðu umboðsmanns en hann beinir ekki sérstökum tilmælum um úrbætur til mín, umfram það að hafa sjónarmiðin sem fram koma í álitinu í huga til framtíðar,“ skrifar Svandís Svavarsdóttir matvælar´ðaherra í Facebookö-færslu.

En hún segist engu að síður hafa ákveðið eftirfarandi:

  1. Að fela óháðum aðila að fara yfir stjórnsýslu og lagaumgjörð hvalveiða, þ.m.t. alþjóðlegar skuldbindingar ríkisins, og valdheimildir stjórnvalda á þeim grundvelli. Álitsgjafi verði jafnframt beðinn um að gera tillögur að úrbótum eftir því sem við á, og eftir atvikum tillögur að breytingum á lögum.
  2. Að fela ríkislögmanni að leggja mat á framkomið erindi Hvals hf. þar sem félagið óskar eftir viðræðum við ríkið um mögulegt uppgjör vegna álitsins.

„Ég gríp til þessara skýru viðbragða í ljósi þess að mikilvægt er að stjórnvöld beri virðingu fyrir eftirlitsstofnunum og sýni það í verki. Umboðsmaður Alþingis gegnir mikilvægu hlutverki í eftirliti með stjórnsýslu ríkisins í okkar lýðræðissamfélagi,“ skrifar Svandís og má ætla af þessu að hún sitji sem fastast sem matvælaráðherra og halda hvalveiðum í ráðuneytinu.

„Að baki útgáfu reglugerðarinnar á sínum tíma var enginn illur ásetningur. Mér gekk ekkert annað til en að fara að lögum og þar á meðal og ekki síst mikilvægum lögum frá 2013 um að okkur beri að koma vel fram við dýr,“ skrifar Svandís og ver ákvarðanir sínar.

„Í afar þröngri stöðu í tíma og rúmi þar sem ég fékk í hendur álit fagráðs um dýravelferð sem taldi að veiðar á hval gætu ekki samræmst dýravelferðarlögum fól ég ráðuneyti mínu að gera tillögur að viðbrögðum. Ég fór þá að öllu leyti að ráðgjöf ráðuneytisins og undirritaði reglugerð um frestun á upphafi vertíðarinnar þar sem unnt væri að nýta tímann til að m.a. kanna tillögur leyfishafans um það hvort og þá hvernig bæta mætti framkvæmdina. Ég hef ekki enn heyrt þá rödd sem telur að það sé réttlætanlegt að stunda ómannúðlegar veiðar á hvölum. Og umboðsmaður tekur raunar undir það að málefnalegt geti verið að líta til sjónarmiða um dýravelferð við reglusetningu á grundvelli hvalveiðilaganna. En nú er álit umboðsmanns komið fram og ég hlusta á þau sjónarmið sem þar koma fram og tek þau til mín,“ skrifar Svandís.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí