Umferðin aldrei verið eins mannskæð og í janúar
Á einungis einum mánuði, janúar árið 2024, hafa sex látist í umferðinni. Banaslysin voru samtals fjögur en þau hafa aldrei verið jafn mörg. Þetta eru jafn margir og létust allt árið 2019 í umferðinni. RÚV greinir frá þessu.
Nýjasta banaslysið var í gær þegar dráttarvél og jeppi skullu saman á Suðurlandsvegi. Einn lést í því slysi. Þar áður lést einn í slysi á Vesturlandsvegi þann 17. janúar. Þar áður létust tveir ferðamenn í slysi við Skaftafell þann 12. janúar. Að lokum létust hjón í slysi á Grindavíkurvegi þann 5. janúar.
Við þurfum á þér að halda
Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.
Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.
Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.
Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.
Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.
Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.
Þitt framlag skiptir máli.
Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward