ASÍ segir breytingar á búvörulögum stórhættulegar

Kjaramál 22. mar 2024

Alþýðusamband Íslands (ASÍ) telur með öllu óviðunandi að stjórnvöld stefni beinlínis að því að skerða kjör launafólks og neytenda með stórhættulegum breytingum á búvörulögum. Jafnframt er vakin athygli á að sú hringamyndun og verðstýring sem stefnt er að með frumvarpinu vinnur beinlínis gegn nýgerðum kjarasamningum á almennum vinnumarkaði.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu sambandsins sem birt var í gær. Breytingar á búvörulögum voru samþykktar síðdegis í gær og eru þær með þeim hætti sem ASÍ varaði við að væri stórhættulegt. 

Forsaga máls er sú að matvælaráðherra lagði fram drög að frumvarpi sem kynnt var í samráðsgátt og síðan lagt fram á Alþingi. Nú hefur meirihluti atvinnuveganefndar lagt fram svo róttækar breytingar á frumvarpinu að fullyrða má að ekki er á ferð sama mál og ýmsir hagaðilar tjáðu sig um í umsagnarferlinu.

Alþýðusambandið tekur fram að beiðni um umsögn barst því ekki og ekkert samráð var haft við verkalýðshreyfinguna við vinnslu málsins.

Eftir breytingar atvinnuveganefndar er frumvarpið bein aðför að kjörum fólksins í landinu sem gert verður að sæta því að hagsmunaaðilar hafi með sér samráð um verka­skipt­ingu, verðlagn­ingu og fleira. Vart þarf að taka fram að slík framganga telst ólögmæt og refsiverð í öðrum atvinnugreinum. Til að tryggja lögmæti samráðs og hringamyndunar eru felld niður ákvæði um eftirlit Sam­keppnis­eft­ir­lits­ins og eft­ir at­vik­um bann við óheim­il­um samn­ing­um eða ákvörðunum fram­leiðenda, sem voru í upp­haf­legu frum­varpi ráðherra.

Fyrir liggur að breytingar þær sem meirihluti atvinnuveganefndar vill gera ganga miklu lengra en þekkist í nágrannalöndum og efasemdir hljóta að vakna um að þessi gjörningur stæðist skoðun samkvæmt EES-reglum. Að öðru leyti tekur ASÍ undir þau sjónarmið sem fram koma í áliti Samkeppniseftirlitsins sem telur málið allt til mikillar óþurftar.

Fyrir skemmstu var skrifað undir sögulega kjarasamninga á almennum vinnumarkaði sem hafa það einkum að markmiði að vinna gegn verðbólgu til að þannig megi færa niður vaxtastig í landinu. Samningunum fylgir mikilvæg yfirlýsing stjórnvalda um aðkomu þeirra næstu fjögur ár.

Vilji meirihluta atvinnuveganefndar vinnur beinlínis gegn þessu markmiði og vekur vægast sagt mikla furðu að kjörnir fulltrúar almennings hyggist ganga fram með þessu móti.

ASÍ telur alla meðferð málsins með miklum ólíkindum og hvetur þingmenn til að huga að afleiðingum gjörða sinna. Ólíðandi er með öllu að vélað sé um hagsmuni fólksins í landinu með svo ófyrirleitnum hætti, nánast í skjóli nætur, í bakherbergjum Alþingis.

Yfirlýsing af síðu ASÍ.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí