Starfsmaður ísraelska ríkisútvarpsins fagnar sigri: „Vilji fólksins sigraði“

„Hera Björk er að fara í Eurovision. Samsæriskenningasmiðir töpuðu. Vilji fólksins sigraði. Til hamingju!“

Þetta skrifar Yogev Segal, starfsmaður ísraelska ríkisútvarpsins, innan Facebook-hópsins Israeli-Icelandic conversation. Hópurinn er nokkurs konar aðdáunarklúbbur þeirra Íslendinga sem styðja Ísrael.

Segal stofnaði hópinn um svipað leyti og það kom í ljós að Bashar Murad myndi keppa í Söngvakeppninni en líkt og áður hefur verið greint frá stóð hann að baki herferð gegn Bashar.

Segal hvatti alla meðlimi þessa hóps til að kjósa Heru Björk í lokakosningu Söngvakeppninnar. Það væri öruggasta leiðin til að sjá til þess að Palestínumaður sjáist ekki á sviði í Svíþjóð í vor. Það tókst, þó enn sé óljóst hvort það hafi verið herferð hans að þakka eða ekki.   

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí