Því miður eigum við ekki samleið lengur, segir Sigrún á leið sinn úr Samfylkingunni

„Mér er svo alvarlega misboðið yfir útlendingahatri sem svífur yfir vötnum og virðist vera orðið allt of normaliserað þessa dagana,“ skrifar Sigrún Skaftadóttir, formaður Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar á Facebook. „Mér er það misboðið að ég sagði mig úr samfylkingunni. Þið sem hafið þekkt mig lengi vitið að ég hef verið meðlimur í flokknum síðan ég var 18 ára og alltaf getað speglað mig og mínar skoðanir í flokknum.“

„En því miður eigum við ekki samleið lengur,“ heldur Sigrún áfram. „Ég kveð flokkinn með trega og vona að þau finni aftur mannréttinda hjartað sem sló svo fallega. Ég verð alltaf social democrati en ég túlka það bara ekki eins og þau sem leiða flokkinn. Ég trúi á opið og fallegt samfélag þar sem fjöbreytileikanum er fagnað óháð kyni og uppruna.“

„Tek undir hvert orð og gerði slíkt hið sama,“ skrifar Kolbrún Birna Hallgrímsdóttir Bachmann, sem setið hefur í stjórn Ungra jafnaðarmanna í Reykjavík.

„Mér er stórlega misboðið. Þetta er ekki flokkurinn sem ég gekk í,“ skrifar Gunnar Hörður Garðarsson, sem lengi hefur starfað innan flokksins.

„Virðingarvert og mjög skiljanlegt viðbragð. Þú ert manneskja og það sem flokkurinn er að bjóða upp á núna er óboðlegt!“ skrifar Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar og eiginmaður Helgu Völu Helgadóttur, sem sagði af sér þingmennsku fyrir Samfylkinguna síðasta sumar.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí