Samninganefnd Eflingar boðaði að kvöldi dags 28. febrúar til verkfallsaðgerða hjá félagsfólki Eflingar sem starfar við ræstingar. Verkfallskosning verður auglýst í dag á vef Eflingar og hefst hún mánudaginn 4. mars klukkan 16:00.
Í myndbandi sem birt hefur verið á vef Eflingar fer Sólveig Anna Jónsdóttir formaður yfir næstu skref væntanlegra verkfallsaðgerða. Félagsfólk Eflingar er hvatt til að fylgjast vel með fréttum á vef stéttarfélagsins og ganga úr skugga um að allar upplýsingar um það séu réttar á Mínum síðum, sérstaklega bankaupplýsingar. Eins og venja er þegar félagsfólk Eflingar fer í verkföll ver vinnudeilusjóður félagsfólk gegn launatapi. Þess vegna er mikilvægt að skráðar séu réttar bankaupplýsingar hjá félaginu.
Sólveig segist vilja að félagsfólk viti að samninganefnd Eflingar styður þau í baráttunni fyrir bættum kjörum. Hún minnti líka á að félagar Eflingar í aðildarfélögum Breiðfylkingarinnar um allt land styðja líka baráttu þeirra og Eflingar fyrir betri samningi fyrir fólk sem starfar í ræstingageiranum.
Sólveig Anna segir að á næstu dögum gætu SA (Samtök atvinnulífsins), sem samninganefnd Eflingar semur við, komið með tilboð sem nefndinni lítist nægilega vel á til að samþykkja, sem gæti leitt til þess að verkfallsaðgerðir verði afturkallaðar. Því er mjög mikilvægt að félagsfólk sem starfar í ræstingageiranum haldi sér upplýstu um hvað sé að gerast.
Byggt á frétt af vef Eflingar.