Katrín beiti sér fyrir því að ný lög um undanþágu afurðastöðva frá samkeppnislögum verði afnumin 

Neytendur 3. apr 2024

FA, VR og Neytendasamtökin hafa sent Katrínu Jakobsdóttur, starfandi matvælaráðherra, erindi vegna nýsamþykkra laga um undanþágu kjötafurðastöðva frá samkeppnislögum. Samtökin leggja til að ráðherra beiti sér fyrir ógildingu laganna, sem líkleg séu til að brjóta gegn bæði EES-samningnum og stjórnarskrá Íslands.

Í erindinu benda samtökin þrenn á að ráðherra hafi verið í lykilstöðu til að hafa áhrif á framgang málsins á Alþingi þar sem hún hafi verið starfandi matvælaráðherra og jafnframt forsætisráðherra, verkstjóri ríkisstjórnarinnar. Í stað þess að bregðast við viðvörunum Samkeppniseftirlitsins og fjölda samtaka við því að málið yrði að lögum, hafi hún komið í fjölmiðla eftir samþykkt þess og sagst ætla að biðja matvælaráðuneytið að skoða hvort hin nýju lög fari í bága við EES-samninginn. Samtökin benda á að í reglum ríkisstjórnarinnar sé gert ráð fyrir að slíkt mat fari fram áður en mál eru lögð fram á Alþingi, en ekki eftir samþykkt þeirra.

Samtökin taka jafnframt undir ábendingar um að meðferð málsins á Alþingi hafi gengið í berhögg við 44. grein stjórnarskrárinnar, um að ekkert lagafrumvarp megi samþykkja fyrr en það hafi verið rætt við þrjár umræður á Alþingi. Málinu hafi verið gerbreytt við 2. umræðu. Það þingmál sem var samþykkt hafi því verið allt annað en það sem umsagnaraðilar höfðu tekið afstöðu til í samráðsferli og í umsögnum til Alþingis og allt annað en það sem þingmenn ræddu við 1. umræðu. Ekki verði því séð að lögin hafi verið sett með stjórnskipulega réttum hætti.

Niðurlag erindisins er eftirfarandi:
„Að mati samtakanna ber ráðherra við þessar aðstæður augljós skylda til að aðhafast tafarlaust að eigin frumkvæði til að tryggja þrennt:

  • Að lagasetningin sé í samræmi við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið.
  • Að mat á áhrifum lagasetningarinnar sé í samræmi við reglur ríkisstjórnarinnar. sjálfrar um undirbúning og frágang stjórnarfrumvarpa og þingsályktunartillagna
  • Að meðferð Alþingis á málinu sé í samræmi við stjórnarskrána.

Beinast liggur við að ráðherra beiti sér fyrir því að lög nr. 1322/2024 verði felld úr gildi. Athafnaleysi ráðherra í þessu máli er líklegt til að skaða hagsmuni neytenda, launþega og verslunar í landinu. Óskað er svars hið fyrsta um það til hvaða ráðstafana ráðherra hyggst grípa.“

Sjá erindi FA, VR og Neytendasamtakanna til ráðherra hér.

Frétt af vef VR.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí