Slúðursaga Davíðs á sér enga stoð í raunveruleikanum – „Vona að honum sé ekki farið að förlast“

Guðjón Friðriksson sagnfræðingur segist vona að Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins og forsetaframbjóðandi, sé ekki farinn að förlast þrátt fyrir að hafa birt slúðursögu sem á sér enga stoð í raunveruleikanum í leiðara blaðsins í dag. Í leiðara Morgunblaðsins er því haldið fram að ævisaga Ólafs Ragnars Grímssonar hafi átt að heita Útrásarforsetinn. Guðjón ætti þó manna best að vita hvað sú bók hafi átt að heita, enda skrifaði hann hana.

„Fyrir tæpum 16 árum kom út eftir mig bók um þann umdeilda mann, Ólaf Ragnar Grímsson, Saga af forseta. Auðvitað sýndist mönnum sitt hvað um bókina eins og gengur og gerist og ekkert við því að segja. En í gang fór jafnframt ýmis konar slúður um aðdragandann að bókinni sem maður heyrði sumt en vafalaust sumt ekki. Mér til undrunar birtist ein slík slúðursaga um síðir í leiðara Morgunblaðsins í morgun en hana hafði ég ekki heyrt áður. Þar segir að bókin hafi átt að heita Útrásarforsetinn. Síðan segir að þegar hrunið varð hafi ég, bókarhöfundur, sent bókarefnið „með hraði upp í útgáfuna til að breyta hinu nú vandræðalega nafni og tókst það naumlega“. Þessa sögu hef ég aldrei heyrt áður enda á hún sér enga stoð í raunveruleikanum,“ segir Guðjón á Facebook og bætir svo við:

„Aldrei hefði hvarflað að mér að láta bókina heita Útrásarforsetinn og það nafn á henni kom aldrei upp mér vitanlega – fyrr en núna. Ég vona að ritstjóra Morgunblaðsins sé ekki farið að förlast eins og honum sjálfum er tíðrætt um varðandi ákveðinn stjórnmálamann vestan hafs.“

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí