Ekki til fjármagn til að bjarga fólki á Norðurlandi
„Það er nú einfaldlega þannig að það fékkst ekki fjármagn í verkefnið og af þeim sökum urðum við að hætta við.“
Þetta segir Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, í samtali við RÚV en þar vísar hann í verkefni sem snéri að því að koma fyrir björgunþyrlum víðar á landinu en einungis í Reykjavík.
Í vetur auglýsti Gæslan eftir flugmönnum til starfa á björgunarþyrlum. Það var gert eftir að lögð hafði verið fram þingsályktunatillaga á Alþingi um að komið yrði fyrir fastri starfsstöð á Akureyri fyrir þyrlu Gæslunnar.
Þeir sem sóttust eftir fyrrnefndu starfi fengu á dögunum svo bréf þess efnis að ekki yrði ráðið í starfið.
Við þurfum á þér að halda
Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.
Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.
Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.
Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.
Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.
Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.
Þitt framlag skiptir máli.
Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward