Mun meiri líkur eru á að fólk missi heilsuna ef það er ekki með heimilislækni. Engu að síður er aðeins annar hver Íslendingur með heimilislækni en í Noregi er hlutfallið 95 prósent.
Þetta kom fram í umræðu um heilbrigðismál á Alþingi í dag þegar Hanna Katrín Friðrikson frummælandi í sérstakri umræðu um höfuðborgarsvæðið ræddi vanda og ekki síst skort á heimilislæknum.
Kom fram hjá þingmönnum að dæmi væru um að fólk í andarslitrunum fengi ekki þjónustu fyrr en mánuðum síðar.
Willum Þór Willumsson heilbrigðisráðherra viðurkenndi að staðan gæti verið betri. Margir báru Ísland saman við nálæg lönd. Nefndi Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingmaður pírata, að í heimsókn hennar nýverið til Frakklands fékk hún tíma hjá heimilislækni daginn eftir að hún pantaði. Það tók svo aðeins örfáa daga að fá tilvísun á sérfræðilækni. Biðin eftir þjónustu hér er lífshættuleg að því er Arndís Anna hélt fram.
Gamaldags viðhorf hins opinbera til tækni er einn vandinn sem stendur úrbótum fyrir þrifum að því er kom fram hjá Diljá Mist Einarsdóttur, þingmanni Sjálfstæðisflokksins.
Vottanafargan og eltingarleikur við kerfið voru meðal þess sem bar á góma og féllu mörg stór orð í umræðunni.