Helgi Björnsson jöklafræðingur lýsir ótrúlegum aðstæðum á bráðavakt Landspítalans í Fossvogi fyrir nokkrum vikum. Hann sat þar í stól í 12 tíma um nótt og varð vitni að hrikalegu ástandi þar sem harðduglegt starfsfólk gerði þó allt hvað það gat til að sinna bráðveiku fólki. Undir morgun degi fékk Helgi rúm frammi á gangi.
„Eftir mikið hik hef ég ákveðið, vegna mikillar umræðu í fréttum að segja ykkur frá bráðavaktinni í Fossvogi,“ segir Helgi og lýsir eftirfarandi reynslu í færslu á facebook.

„Tveimur dögum fyrir jól var ég fluttur þangað vegna þess að mig sundlaði við innkaup í verslun þar sem starfsmenn þar sögðust fara að starfsreglum og hringdu á sjúkrabíl. Mér var vel tekið og þegar ljóst þótti að mér liði bærilega var ég settur í stól og starfsfólk sneri sér að aðkallandi verkefnum. Allt starfsfólk var á fullri ferð um gangana eins og maurar, sérhver vissi hvert hann þyrfti að hlaupa. Í stólnum sat ég í 12 klukkustundir, glaðvakandi,“ segir Helgi.
Inn kom stöðugt sjúkt fólk að hans sögn. Sumir í rúmum, aðrir í hjólastólum.
„Einn var alblóðugur á höfði með brotnar tennur, aðrir veinuðu af kvölum. Kona á miðjum aldri veigraði um gangana og sveiflaði höndum í vímu eða geðrofi. Læknir sagðist vilja ræða í einrúmi við unga konu og eiginmaður hennar tryllist vegna þess að honum var ekki ætlað að hlusta á samræður þeirra. Með þeim var lítið barn. Með mér á stólunum voru tveir landar mínir en sex menn af erlendum uppruna.“
Undir morgun var Helga sagt að hann fengi rúm á gangi.
„Stöðugt var sjúklingum ekið fram hjá, sumir mjög kvaldir. Skammt frá taldi ég að gamall maður ætti stutt eftir, næstu skyldmenni höfðu verið kölluð til. Hann hefur ekki fengið ummönnun á sjúkraheimili en að lokum komist inn á bráðadeild til þess að deyja.“