Heilgbrigðismál:
Sigurður Ágúst Sigurðsson, formaður Félags eldri borgara í Reykjavík var í viðtali í þættinum Reynsluboltar á Samstöðinni þar se rætt var um hjúkrunarheimili og hversu erfitt hefur verið að manna þau. Þá hefur verið gripið til þess að nefna hjúrkunarrými biðrými. Þá er ekki sama krafa um fjölda starfsmanna. Til að mynda er einn hjúkrunfarfræðingur á vakt í sjö hæða hjúkrunarheimili með „biðrýmum“.
„Þarna ert þú að vísa í það að það er verið að byggja hjúkrunarheimili og fela hagnaðardrifnu fyrirtækjum að reka heimilin. Grund, Hrafnista, Skjól og fleiri heimili eru ekki hagnaðardrifin. Nú er verið að færa þetta í hendur á rekstraraðilum, sem mér sýnist að hafi ekki mikið vit á rekstri hjúkrunarheimila. Nú er verið að kalla þetta öðru nafni en hjúkrunarheimili.
Nú er það ekki hjúkrunarrými, heldur biðrými. Og hvað þýðir það? Það þýðir að þar þarf ekki að manna þann rekstur jafn mörgum starfsmönnum og er á hjúkrunarheimilum, sem eru ekki hagnaðardrifin.
Þetta er sjö hæða hjúkrunarheimili. Það er einn hjúkrunarfræðingur á vakt á þarf því að ferðast um sjö hæðir til að geta sinnt þeim sjúklingum sem þurfa á aðstoð að halda. Svo er margt, af þessu ágæta starfsfólki útlendingar sem hvorki tala né skilja íslensku.“
Auk Sigurðar voru viðmælendur þau Drífa Sigfúsdóttir og Guðbrandur Stígur Ágústsson.