Sanna hvött til þingframboðs

Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi sósíalista, hefur leitt skipulagsvinnu fyrir framboð Sósíalista til Alþingis. Á fundi um helgina var kosið í kosningastjórn flokksins. Kemur fram í tilkynningu frá sósíalistum að félagar Sönnu hafi við það tilefni hvatt hana til að bjóða sig fram til þings. Sanna mun hafa tekið vel í þá hugmynd að því gefnu að flokksfélagar styðji hana að því er fram kemur í tilkynningu frá sósíalistum.

Sósíalistar hafa mælst með 3-4 prósenta fylgi í könnunum undanfarið. Þeir voru hársbreidd frá að ná mönnum á þing í kosningunum fyrir þremur árum. Sósíalistar ætla sér stærri hlut næst að því er fram kemur í upplýsingaefni frá stjórnmálaaflinu.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí