Ljótleiki húsa peningaöflum að kenna

Samfélagið 16. des 2025

Skipulagsmál eru orðin stjórnlaus. Sveitarfélög hafa afsalað sér valdi sem þau áður höfðu í skipulagsmálum. Fjármagnseigendur og verktakar ráða því í stað sveitarfélaganna áður hvernig mannvirki eru hönnuð og byggð með ömurlegum afleiðingum.

Þetta segir Magnús Skúlason arkitekt.

Hugsunin undanfarið hefur verið að græða sem mest á byggingum, þær verða fyrir vikið oft ljótar, ljóslausar, byggt er of þröngt og hljóðvist ekki góð. Magnús ræðir stórslys í þeim efnum ásamt Kristínu Ómarsdóttur verkfræðingi í samtali við Björn Þorláks við Rauða borðið á Samstöðinni.

„Þetta versnaði þegar vinstrimenn tóku við borginni,“ segir Magnús og vísar til umskiptanna 1994 þegar Reykjavíkurlistinn leysti íhaldið af hólmi við stjórn borgarinnar.

Þá kom fram í þættinum að í 13 ár hefur verið beðið leiðbeininga um hávaða frá Umhverfisstofnun. Kostur hefur um langt skeið verið gefinn á fráviki frá hávaðareglum sem nánast virðist nú litið á sem norm og skýrir meðal annars nálægð húsa við umferðargötur.

Erfitt getur reynst að gagnrýna þessi mál opinberlega. Voru nefnd þöggunardæmi í umræðunni þar sem fólk kýs að halda sér til hlés í stað þess að gagnrýna ástand mála – í þeim tilgangi að halda vinnu eða fá verkefni.

Sjá þáttinn með því að smella á hlekkinn hér að neðan.

Rauða borðið 15. des. – Hávaði i leikskólum

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí