Telur aumingjaskap allsráðandi á fréttastofu RÚV: „Kjarklaus og þar með léleg“

„Rosalega er Fréttastofa RÚV bitlaus, kjarklaus og þar með léleg. Ég hélt ekki að ég ætti eftir að segja þetta um vinnustaðinn sem ól mig upp sem blaða/fréttamann.“ Þetta skrifar blaðamaðurinn þaulvani Jóhann Hauksson fyrr í dag en að hans mati er ekki sjón að sjá fréttastofuna því gagnrýnar fréttir sjáist þar varla lengur. Jóhann setur þetta í samhengi við það að ekki er svo langt síðan fréttastofan var leiðandi í umfjöllun um spillingarmál innan íslenskra stjórnmála. Jóhann var gestur Rauða borðsins í gær og má hér neðst sjá hann ræða stöðu blaðmennsku nánar.

„Afhjúpun fjölmiðla í Vintris-málinu urðu til þess að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson þv forsætisráðherra varð að segja af sér. Þar var reynt að gera vinnubrögð blaðamanna tortryggileg og að aðalatriði málsins, m.a. af RÚV. Þetta heitir að afvegaleiða almenning. Þegar annar forsætisráðherra Bjarni Benediktsson braut reglur sem hann hafði sjálfur átt þátt í að setja um Covid, fjallaði RÚV um það hvernig upptökur eða önnur gögn láku frá lögreglunni til fjölmiðla. Brot BB urðu aukaatriði. Forsætisráðherra Noregs sagði af sér fyrir svipaðar sakir,“ skrifar Jóhann á Facebook.

En Jóhann segir alvarlegt mál að fréttastofa RÚV sé hætt þessu í dag. „Kjarklausa RÚV, með sannanir í höndum, bognar bara og skelfur. Afvegaleiðir almenning. Þegar fyrir liggja sannanir um vinargreiða, aðstöðubrask og öskrandi spillingu Bjarna Ben og Jóns Gunnarssonar er eitthvert meint ALRÆMT fyrirtæki í fyrirsögnum fréttastofu og Silfri í stað þess að horfa ögn framhjá uppruna upplýsinganna en einbeita sér að innihaldi þeirra. Kjarkleysi og aumingjaskapur. Sambærileg fyrirtæki voru ekki sérstaklega ALRÆMD þegar þau voru ráðin eftir bankaahrun til þess að feta slóð peninga sem stolið hafði verið úr bönkunum. Ráðin til verka af slitsstjórnum bankanna,“ segir Jóhann.

Hann bætir svo við að fréttastofan ætti að rifja upp gamlar siðareglur Jónasar heitins Kristjánssonar, sem var lengi ritstjóri DV:

„Jónas Kristjánsson heitinn ritstjórni birti eitt sinn siðareglur blaðamanna sem eru í raun afrakstur tveggja alda starfsemi þeirra. RÚV hefur kannski lært þær en hefur ekki kjark til að fylgja sannleikanum eftir heldur er staðið að því að þyrla upp moldviðri þar til hann hverfur almenningi sjónum.

Þær eru svona:

“Blaðamennska veitir fólki upplýsingar, sem gera það frjálst:

1. Skuldbinding hennar er fyrst og fremst við sannleikann.

2. Hollusta hennar er við borgarana.

3. Eðli hennar er leit að staðfestingum.

4. Hún er sjálfstæð gagnvart þeim, sem fjallað er um.

5. Hún er óháður vaktari valdsins.

6. Hún er torg gagnrýni og málamiðlana.

7. Hún reynir að gera það mikilvæga áhugavert og viðeigandi.

8. Hún er víðtæk og í réttum hlutföllum.

9. Hún má beita eigin samvisku.”

Fréttamenn RÚV: Herðið upp hugann og bætið ráð ykkar!“

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí