Sjálfstæðisflokkurinn er sannarlega reiðubúinn

Hildur Björnsdóttir, oddviti XD í borgarstjórn skrifaði þetta rétt áðan:

Meirihlutinn er fallinn í Reykjavík. Í því felast tíðindi helgarinnar.

Upp er komin flókin staða en við slíkar aðstæður er ábyrgðarhluti að mynda starfhæfan meirihluta um mikilvæg verkefni. Sjálfstæðisflokkurinn er sannarlega reiðubúinn að axla þá ábyrgð og taka til hendinni við stjórn borgarinnar.

Fimmtán mánuðir eru eftir af kjörtímabilinu og því skammur tími til stefnu. Æskilegast væri að mynda meirihluta sem næði árangri og samstöðu um löngu tímabæra tiltekt í fjármálum borgarinnar, stórsókn í húsnæðisuppbyggingu og átak í leikskóla- og daggæslumálum. Þá mega skipulagskreddur ekki koma í veg fyrir skynsamlega nálgun í málefnum Reykjavíkurflugvallar.

Við skuldum borgarbúum Reykjavík sem virkar – einfaldari hversdag fyrir fjölskyldur, greiðari samgöngur fyrir fólk og fyrirtæki og kerfi sem hefur að markmiði að leggja fólki lið, en ekki leggja stein í götu þess.

Auðvitað væri einfaldasta leiðin til að ná árangri með þessi mál að mynda meirihluta þeirra fjögurra flokka sem funduðu um helgina. Þar er augljós málefnalegur samhljómur og erfitt að sjá hvernig sambærilegum árangri yrði náð í öðru mynstri.

Það er ákall eftir bráðaaðgerðum í borginni, og við slíkar aðstæðar þurfa stjórnmálaflokkar að finna til ábyrgðar. Hvergi hefur borið skugga á samstarf sjálfstæðismanna og Flokks fólksins í borgarstjórn, og kom útspil þeirra því nokkuð á óvart. Dyr okkar sjálfstæðismanna standa enn opnar en eðli máls samkvæmt þarf nú að skoða fleiri möguleika.

Það eru mörg mynstur sem koma til greina og það væri óábyrgt af stærsta flokknum í borginni að útiloka nokkuð við þessar aðstæður – því stjórnlaust skip steytir að endingu á skeri.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí