Einn reyndasti og umsvifamesti fjölmiðlungur landsins, Gunnar Smári Egilsson, spáir því að fjölmiðlar Sýnar svo sem Vísir, Bylgjan og Stöð 2, hverfi í núverandi mynd innan nokkurra mánaða.
Mikil ókyrrð hefur verið innan Sýnar undanfarið, fjöldi yfirmanna hefur hætt störfum og hefur einnig kvarnast úr fréttastofunni dag frá degi.
Gunnar Smári segir liðna tíð að hægt sé að reka fjölmiðil sem hlutafélag í von um hagnað. Taprekstur sé eina mögulega niðurstaðan.
„Það mun því gerast innan skamms að Sýn selur fjölmiðlana frá sér og þá verða líklegir kaupendur einhverjir auðkýfingar sem vilja nota fjölmiðla svipað og kvótagreifarnir sem eiga Moggann. Nú, eða eins og Elon Musk notar Twitter sjálfum sér til upphafningar. Það eru því ekki nema einhverjar vikur eftir af fjölmiðlum Sýnar sem almennum miðlum, þeir verða spenntir fyrir vagn einhvers sem ætlar að verja auð sinn og aðstöðu, gegn almenningi,“ segir Gunnar Smári.
Besta leiðin til að koma í veg fyrir þessa myrku spá er að sögn Gunnars Smára að lífeyrissjóðirnir myndu leysa til sín fjölmiðlana, en sjóðirnir eiga mikinn meirihluta af hlutafé Sýnar „þótt einhverjir kabojar hafi stjórnað þar öllu í krafti lítils eignarhluta í trausti þess að lífeyrissjóðirnir elti alltaf stærsta einkafjárfestinn, séu einskonar meðreiðarsveinn auðvaldsins“.
Lífeyrissjóðirnir gætu rennt fjölmiðlunum inn í sjálfseignarstofnun og stefnt að því að selja almenningi aðild að henni á næstu 30 til 40 árum til að endurheimta fé sitt að sögn Gunnars Smára.
„Lífeyrissjóðirnir eiga svo mikið undir íslensku samfélagi að segja má að besta fjárfesting þeirra sé að renna sterkum stoðum undir öflugt og opið lýðræðislegt samfélag og styrkja innviði þess, bæði harða og mjúka. Ef allt á Íslandi endar í höndum örfárra auðugra fjölskyldna mun fé lífeyrissjóðanna smátt og smátt brenna upp og eyðast. Það gerðist í aðdraganda Hrunsins og mun gerast aftur ef ekki tekst að setja hömlur á auðsöfnun hinna fáu á kostnað öryggis, afkomu og valda fjöldans. Það gagnast lífeyrissjóðum ekkert að veðja á einhver fyrirtæki innan hnignandi samfélags. Þótt fyrirtækin vaxi innan samfélagsins þá fellur verðmæti þeirra með minnandi afli og getu samfélagsins. Fókusinn ætti því að vera á að styrkja og efla samfélagið sem heild, svo það geti lyft upp fólki og fyrirtækjum. Og það verður ekki gert með því að óligarkavæða Ísland enn frekar.“