Bein fréttaumræða klukkan 16 í dag
Samstöðin sendir út beint í útvarpi, sjónvarpi og á vef klukkan 16 í dag þegar Gunnar Smári Egilsson blaðamaður stjórnar umræðuþætti um fréttir vikunnar. Þátturinn er vikulega á dagskrá og ber heitið Vikuskammtur. Við Rauða borðið í dag sitja þau Steinar Harðarson, athafnastjóri hjá Siðmennt og gjaldkeri VG, Helga Arnardóttir fjölmiðlakona, Margrét Helga Erlingsdóttir fréttakona og Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Leigjendasamtakanna .
Gestirnir ræða með Gunnari Smára fréttir sem sumar hverjar einkenndust af deilum og átökum um grundvallarþætti samfélagsins, mannréttindi og frelsi.
Við þurfum á þér að halda
Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.
Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.
Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.
Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.
Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.
Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.
Þitt framlag skiptir máli.
Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward