Jón Gunnarssson Sjálfstæðisflokki steig í ræðustól Alþingis og talaði þá um raforkulög. Jón horfði nokkuð í baksýnisspegilinn til þess tíma þegar hann og hans flokkur voru ráðandi. Jón er dómharður á það sem gert var, eða ekki gert:
„Við erum að ræða í dag einmitt inni í atvinnuveganefnd annað mál frá hæstvirtur ráðherra sem snýr að forgangsorku fyrir ákveðna aðila í samfélaginu, almenning. Það er að gefnu tilefni. Það er einmitt vegna þess hve illa hefur tekist til. Við værum ekkert að ræða þetta ef við hefðum staðið okkur í því að vinna okkar vinnu. Núverandi staða kemur í sjálfu sér engum á óvart sem hefur fylgst með þessum málum lengi. Við þessu hefur verið varað ítrekað og alveg með ólíkindum hvað þingið stóð sig illa, eða margir flokkar þar og þingmenn, í því að hlusta á sérfræðingana í þessum málum og alveg magnað að Samfylkingin, sem þar til fyrir einu og hálfu ári síðan eða svo var með forstjóra í orkufyrirtækinu sínu, Orkuveitunni eða Orku náttúrunnar, sem í dag er ráðgjafi hjá Landvernd — forstjórinn til margra ára kom ítrekað fram í fjölmiðla og fullyrti við þjóðina, og þar með þingheim, að það þyrfti sko ekki að virkja meira á Íslandi. Ég tek þetta hér upp til þess að við áttum okkur á því hvað það er sem olli þessu og hversu mikilvæg þessi stefnubreyting er sem er að verða núna hjá ákveðnum flokkum, og flokki.“