Nú er helmingi minni þorskveiði en var fyrir kvótann

Sigurjón Þórðarson formaður atvinnuveganefndar Alþingis:

„Ég vil vekja athygli háttvirts þingmanns Jens Garðars Helgasonar á því að við erum nú að veiða minna í öllum tegundum, nánast öllum tegundum. Loðnuvertíðin hefur brugðist og loðnuveiðin núna á síðustu 20 árum er svipur hjá sjón miðað við það sem hún var 20 ár þar á undan. Þorskurinn, það er helmingi minni þorskveiði nú heldur en áður en kvótakerfið var tekið upp. Við sjáum það að við byrjuðum í 300.000 tonnum, við erum núna í tvöhundruð og eitthvað þúsund tonnum og að meðaltali var verið að veiða tvöfalt meira áður en þessi fiskveiðistjórn var tekin upp. Við eigum auðvitað að taka þessa hluti til umræðu. Þó að það sé kannski ekki endilega meginefni þessa máls sem við erum hér að ræða þá tók ég það sem dæmi í ræðu minni um að við eigum auðvitað að fara yfir alla þætti fiskveiðistjórnarinnar. Ég tel það vera mikilvægt og ég held að hluti af þessari mengjafræði, eins og núverandi fiskveiðistjórn hefur gengið út frá, sé að í staðinn fyrir að menn hafi viljað taka gagnrýna umræðu um þá úthlutun í heild sinni þá hafi menn viljað passa sína sneið í menginu. Ég held að það hafi aðeins þvælst fyrir í umræðunni. Sú ábending sem ég kom fram með í ræðu minni tel ég vera eitthvað sem flestallir útgerðarmenn geti að einhverju leyti tekið undir.“

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí