Nýjar lausnir við vanda fjölmiðla og krísu blaðamennsku hér á landi voru kynntar á félagsfundi í Blaðamannafélagi Íslands í gærkvöld í húsnæði félagsins, Síðumúlanum.
Vinnan er afrakstur svokallaðs lausnamóts sem haldið var í mars síðastliðnum með þátttöku um 70 manns víðsvegar úr samfélaginu.
Sú hugmynd sem vakti mesta athygli í gærkvöld við kynningu á efninu, var tillaga um að auglýsingatekjur sem Rúv hefur af sölu auglýsinga renni til einkarekinna miðla. Freyja Steingrímsdóttir, framkvæmdastjóri BÍ, kynnti niðurstöður.
Mjög hallar á samkeppnisstöðu einkamiðla til rekstrar í samanburði við Ríkisútvarpið. Berjast sumir fjölmiðlar í bökkum á sama tíma og traust fer þverrandi, falsfréttum vex ásmegin og blaðamönnum hefur stórfækkað.
Stór hluti vandans er hve mikill hluti auglýsingasölu fer til fyrirtækja sem hafa aðsetur utan landsteinanna.
Þá var mikilvægi þess að stjórnvöld setji sér fjölmiðlastefnu kynnt á fundinum í gærkvöld.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður BÍ, sagði á fundinum að merki væru um að blaðamenn ólíkra fjölmiðla hér á landi væru í auknum mæli að átta sig á mikilvægi aukinnar samstöðu í hagsmunabaráttu.
Blaðamaður Samstöðvarinnar sótti fundinn og verður umræða um hvaða tillögur megi teljar raunhæfar á Samstöðinni í kvöld.