Leiðinlegasta og heimskasta gremjuframleiðsla sem getur hugsast

Atli Þór Fanndal skrifaði:

Þetta eru alveg svívirðileg skrif af hálfu fyrrverandi forsætisráðherra og raunar enn eitt dæmið um þann eyðileggingamátt sem Davíð Oddson var fyrir Ísland. Þessi maður hefur einfaldlega gert heilu kynslóðirnar af stjórnmálafólki að fólki sem trúir því í alvörunni að pólitík snúist ekki um neitt stærra en þau sjálf. Aðstoðarmannakerfið er og hefur alltaf verið kerfi til að styrkja ráðherra gagnvart ráðuneytinu. Þeir eru trúnaðarmenn ráðherra og eiga að vega upp veikleika ráðherra. Það er líka ástæða þess að ráðherrar hafa það í hendi sér hvern þeir ráða. Kerfið er ekki fullkomið en það hefur aldrei verið til að styrkja ráðherra gagnvart eigin flokk enda líka hvers vegna ætti að styrkja ráðherra gagnvart flokknum með launafólki í framkvæmdavaldinu? Það er auðvitað rétt og skammarlegt að ótrúlega margir ráðherrar velja sér spegilmyndir af sjálfum sér og spunameistara í þessar stöður og velta því svo fyrir sér hvers vegna ekkert gengur að koma málum áfram. Aðstoðarmannakerfið er einfaldlega til staðar sem viðurkenning á því að hlutverk ráðherra er flókið og ráðherrar með ólíka styrki. Það er engin krafa gerð um flokkskýrteini. Þetta blogg þarna í Hádegismóum er einhver leiðinlegasta og heimskasta gremjuframleiðsla sem getur hugsast. Það er beinlínis erfitt að bera virðingu fyrir fólkinu sem var hrætt og bar virðingu fyrir þessum manni.

Í leiðaranum segir: Spyrja má hve lengi Ágúst Ólaf­ur hafi verið fé­lagi í Flokki fólks­ins því aðstoðar­menn ráðherra eru ekki eins og hverj­ir aðrir rit­ar­ar og tösku­ber­ar; auk þeirra skyldna eru þeir nefni­lega póli­tísk­ir trúnaðar­menn ráðherra.“ Þvílík rörsýn á heiminn… Trúnaðarmaður ráðherra er sá sem ráðherra treystir og sá sem færir ráðherra getu, kunnáttu og dómgreind sem ráðherra telur sig skorta. Fæst okkar eru svo sturluð að velja bara trúnaðarmenn úr einni klíku. Það er sturlað að ritstjóri fjölmiðils láti eins og slíkt sé eðlilegt.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí