Fréttamenn Morgunblaðsins og þingmenn Sjálfstæðisflokkinn reyna að barna skoðanir blaðs og flokks í útlendingamálum. Hér kastar Óskar Bergsson fram tölum úr svari við fyrirspurn Rósu Guðbjartsdóttur í von að þær renni stoðum undir nýlega grein í blaðinu þar sem því var haldið fram „að nýlegar ákvarðanir stjórnvalda um hækkanir á bótagreiðslum ásamt auðveldu aðgengi erlendra ríkisborgara að þessum kerfum séu líklegar til að leiða til hratt vaxandi eftirspurnar á þessu sviði á næstu árum.“
Óskar dregur fram að íslenskum ríkisborgurum á örorku og endurhæfingarörorku hafi fjölgað úr 13% í 18% af fólki á vinnualdri frá 2012 til 2025 (skýringin er endurhæfingarörorkan var tekin upp, sem er mitt á milli örorku og atvinnuleysisbóta, að hálfu hluti af atvinnuleysisbótakerfinu). Og svo kastar Óskar fram fjöldatölum (ekki hlutfallstölum) um lífeyri til fólks með erlent ríkisfang. Óskar notar 2012 og 2025, þótt svörin hafi borið upplýsingar frá 2010. Ég held mig við það ár.
2010 var erlent fólk á örorku, endurhæfingarörorku og örorkustyrk 0,6% erlendra ríkisborgara á aldrinum 20-64 ára. Þetta hlutfall er nú 2,9% (18% hjá íslenskum ríkisborgurum). Ástæða aukningar er endurhæfingarörorka, þar sem aukning hefur verið síðustu ár. Engin hlutfallsleg aukning var í örorku og fækkun í örorkustyrk og meðlagi (sem Rósa spurði líka um).
Það kemur ekki fram í svörunum hver heildarfjöldinn er sem er á endurhæfingarlífeyri, en í haust kom fram á Heilbrigðisþingi að fjöldinn er næstum fimm þúsund manns. Í svari Ingu Sæland kom fram að fjöldi erlendra ríkisborgara á endurhæfingarlífeyri væri 406, sem er þá um 8% (erlent fólk á vinnualdri er 23,5%). Rósa vildi fá greiningu eftir uppruna, líklega til að geta sannað vinsæla dellukenningu að fólk frá öðrum menningarsvæðum (eins og það er orðað, en á ætíð við um brúnt fólk) sé líklegra til að þiggja bætur. 76 manns frá Asíu og Afríku voru samkvæmt svarinu á endurhæfingarlífeyri 2025, sem er um 1,5% af heildinni, af fólki sem er í endurhæfingu sem miðar að því að fólki komist út á vinnumarkað.
Samkvæmt tölunum á Heilbrigðisþingi í haust fjölgaði fólki á endurhæfingarlífeyri úr um 1600 í 5000 manns frá 2014 til 2025. Aukningin er 3400 manns. Þar af var fólk með erlent ríkisfang 345 (10% af aukningunni) og fólk frá Asíu og Afríku 70 (2% af aukningunni). Það sem knýr áfram fjölgun fólks á endurhæfingarlífeyri eru því alls ekki erlendir ríkisborgarar og enn síður fólk frá Afríku og Mið-Austurlöndum.
Það verður að segjast að þú þarft að vera haldinn þráhyggju á háu stigi til að telja að þessi hópur, innflytjendur og þá einkum fólk frá Afríku og Mið-Austurlöndum sé að sliga velferðarkerfin. Allar tölur, líka þær sem Moggi, Mið- og Sjálfstæðisflokkur kalla eftir, sýna að atvinnuþátttaka innflytjenda er meiri en íslenskra ríkisborgara. Það sem drífur þráhyggjuna áfram virðist vera sú skoðun að brún manneskja eigi ekki að njóta sama réttar til atvinnuleysisbóta, örorku eða endurhæfingar, jafnvel þótt allt þetta sé meira og minna fjármagnað af tryggingargjaldi og öðrum launaskatti, sem innflytjendur borga í sama hlutfalli og innfæddir. Þetta eru sem sé réttindi sem fólk vinnur sér inn með vinnu sinni, sköttum og gjöldum en ekki fæðingarvottorði. Það eru til flokkar í Evrópu sem vilja svipta innflytjendur þessum rétti, að þeir verði látnir borga inn í kerfin en hafi ekki sama rétt og aðrir á að fá greitt út úr þeim þegar þeir missa vinnu eða heilsu. Kannski er Mið- og Sjálfstæðisflokkurinn á leið þangað.
Það er skipulagður áróður í gangi gegn brúnu fólki á Íslandi. Yfir þig er dælt allskyns tölum sem meira og minna eru þvæla, afbökun á raunveruleikanum. Engar rannsóknir styðja málflutning þeirra sem reyna að magna hér upp útlendingaandúð, einkum andúð á brúnu fólki, og þegar tölur þeirra eru skoðaðar kemur í ljós að þær eru meira og minna afbökun og þar með lygi. En brúna fólkið hefur ekki sama aðgengi að fjölmiðlum. Enginn á þingi tekur upp þeirra hagsmuni eða sjónarmið. Það er því mikilvægt fyrir þig að láta ekki undan, að yppta öxlum og dæsa yfir því að mörgum finnist nú innflytjendur vera vandamál. Hugsanaleysi fjöldans undan skipulögðum áróðri lukkuriddara (sem sjá frama í rasisma) er ekki góður mælikvarði um hvort eitthvað sé satt eða logið.
Haltu vöku þinni. Láttu ekki and-vökuna ná tökum á þér. Ef höturunum tekst að svipta innflytendur réttindum sínum og mannvirðingu verða fatlaðir næstir, hinsegin fólk, konur, sósíalistar … sagan segir okkur þetta á nokkuð skýran hátt.